Óttast ekki höfnun Erla Björg Gunnarsdóttir og Snærós Sindradóttir skrifa 10. júní 2016 07:00
Elísabet Jökulsdóttir, Hildur Þórðardóttir og Davíð Oddsson hafa notið kosningabaráttunnar sem nú er á lokasprettinum. Viðtal í fullri lengd við forsetaframbjóðendurna má hlusta á í hlaðvarpinu. Elísabet segir kosningabaráttuna vera manndómsvígslu og að hún sé breytt manneskja. Hún mælir með námskeiði fyrir fólk þar sem það finnur forsetann í sjálfu sér. Davíð segir mesta muninn á þessari baráttu og þeirri sem hann er vanur í flokkapólitík vera að hann þurfi að tala meira um sjálfan sig, en minna um strauma og stefnur. Það geti verið áskorun. Hildur segist alls ekki tala um sjálfa sig heldur njóti þess að tala við fólkið í landinu. Hún vill gefa landsmönnum styrk og efla anda þeirra, en hún hefur skrifað sjálfsstyrkingarbækur í gegnum tíðina. Öll hafa þau haft ánægju af kosningabaráttunni og óttast ekki að tapa í kosningunum. Davíð Oddsson lítur ekki svo á að forsetaframbjóðendur tapi þótt þeir endi ekki í forsetastól. „Ef við gerum þetta af einurð og heiðarleika, lít ég ekki svo á að við töpum þótt við vinnum ekki kosningarnar. Ætti fólk eitthvað að liggja brotið og bramlað eftir þetta?" spyr hann. Hildur Þórðardóttir segir framboðið vera sjálfsstyrkingu en Elísabet Jökulsdóttir er í framboði gagngert til þess að fá höfnun, enda sé höfnunin hennar mesti drifkraftur í lífinu. Þau svöruðu spurningum Fréttablaðsins en viðtalið í fullri lengd má hlusta á hér að ofan. Elísabet Jökulsdóttirvísir/stefánStyður þú breytingar á stjórnarskrá? Hvort styður þú frekar tillögur stjórnlagaráðs eða stjórnarskrárnefndar um breytta stjórnarskrá?Elísabet: Já, ég styð nýju stjórnarskrána. Ég styð Illuga hjá stjórnlagaráði. Ég er búin að kynna mér þá stjórnarskrá mjög vel.Davíð: Það á aldrei að kollvarpa stjórnarskrá lýðveldis. Breytingar kunna að vera nauðsynlegar, líkt og 1995 þegar nýr mannréttindakafli, sem styrkti stöðu og réttindi borgaranna, var samþykktur. Það er eðlilegt framhald af þeim breytingum að setja inn í stjórnarskrá rétt almennings til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslur í ákveðnum málum.Hildur: Ég er eindreginn stuðningsmaður nýju stjórnarskrárinnar. Persónukjör, þjóðaratkvæðagreiðslur og ráðherrar út af þingi, skýrara valdsvið forseta, meira vald til fólksins og lárétt valdauppbygging eru allt nauðsynleg ákvæði fyrir lýðræðisríki.Hvaða hagsmunatengsl hefur þú eða þín fjölskylda við stjórnmál eða viðskiptalíf?Elísabet: Ég held að við ráðum öllu. Nei, ég held að þau séu engin. Ég held að Hrafn litli bróðir minn ráði öllu, með Hrókinn.Davíð: Engin en ég er félagi í Sjálfstæðisflokknum. Hildur: Engin. Ég er ótengd stjórnmálaflokkum og ótengd fjármálaöflum og á enga reikninga í skattaskjólum.Davíð Oddssonvísir/stefánVilt þú að miðhálendið verði skilgreint sem þjóðgarður?Elísabet: Ég var að tala við Andra Snæ um daginn og spurði hvort við gætum ekki bara látið þetta heita Öræfi. Af hverju endilega national park? Það er svo amerískt. Honum fannst það ekkert vitlaust. Þannig að ég held að það sé allt í lagi að halda þessu gamla íslenska nafni en það sé með þessum skilyrðum þjóðgarðs. Þannig að ég styð að þetta sé friðað en það er spurning með að kalla þetta öræfi.Davíð: Já, það kemur vel til greina. Hildur: Ég vil að við komum á samræðuvettvangi þar sem sjónarmið náttúruverndarsamtaka, jeppamanna, skotveiðimanna, göngufólks, ferðamannaiðnaðarins, orkufyrirtækja, sauðfjárbænda, landgræðslu og allra sem vilja fái að heyrast. Hvort þetta verður borgaraþing þar sem sérfræðingar og áhugafólk er kallað til eða risastór þjóðfundur er útfærsluatriði.Ertu femínisti?Elísabet: Já. Davíð: Ég er jafnréttissinni. Ég hef alla tíð barist fyrir jöfnum tækifærum allra, og gegn sérréttindum ákveðinna hópa. Hildur: Ég styð jafnrétti kynjanna heilshugar og tel mikilvægt að vinna gegn alls kyns ofbeldi og misrétti. Að kvenlæg gildi verði jafn hátt metin og hin karllægu.Hildur Þórðardóttirvísir/stefánHvort skilgreinir þú þig til hægri eða vinstri á pólitíska ásnum?Elísabet: Eiginlega hvorugt. Samt er ég eiginlega meira vinstri ef út í það er farið. En ég held að þetta séu úrelt hugtök en ég hef alltaf kosið meira til vinstri. Davíð: Ég hef aldrei falið skoðanir mínar í stjórnmálum og þær eru öllum ljósar. Hildur: Mér finnst mikilvægt að taka það besta úr öllum stefnum og blanda því saman í lausn sem hentar samfélaginu. Þetta er ekki spurning um að draga taum einnar stefnu, heldur vinna saman að heill lands og þjóðar.Vilt þú að settar verði siðareglur fyrir forsetaembættið? Hvað væri mikilvægasta atriði þeirra?Elísabet: Bara að hann myndi reglulega fara í persónuleikapróf til að vita hvort hann væri búinn að tapa sjálfum sér. En já, ég held það alveg eins og við setjum okkur öll siðareglur. Og það er kannski sérstaklega með forsetann því hann er þarna aleinn í valdamiklu embætti. Að hann sé ekki að þiggja peninga eða njóta fríðinda sem við gerum ekki. Davíð: Nei. Forseti sem fer að lögum, ekki síst stjórnarskránni, og hefur burði til að sinna embættinu í nánum tengslum við þjóðina, þarf ekki siðareglur. Hildur: Já. Að forseti megi ekki þiggja gjafir í skiptum fyrir persónulega greiða fyrir hagsmunaaðila.Hversu margir starfsmenn vinna við framboð þitt? Elísabet: Enginn. Þetta eru allt sjálfboðaliðar sem ég gríp til. Davíð: Ég er svo lánsamur að til liðs við mig hafa komið tugir sjálfboðaliða um allt land. Hildur: Enginn starfsmaður á launum. Bara fólk sem deilir sömu sýn og ég og hefur trú
Forsetakosningar 2016 Föstudagsviðtalið Tengdar fréttir Tilfinningar voru ekki í boði Hildur Þórðardóttir segist ekki vera á móti lyfjanotkun, eingöngu ofnotkun lyfja. Mikilvægt sé að vinna úr tilfinningum jafnóðum. 10. júní 2016 11:00 Sterkasti drifkrafturinn er höfnun Elísabet Jökulsdóttir segir forsetaframboð sitt vera manndómsvígslu. 10. júní 2016 11:00 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira
Tilfinningar voru ekki í boði Hildur Þórðardóttir segist ekki vera á móti lyfjanotkun, eingöngu ofnotkun lyfja. Mikilvægt sé að vinna úr tilfinningum jafnóðum. 10. júní 2016 11:00
Sterkasti drifkrafturinn er höfnun Elísabet Jökulsdóttir segir forsetaframboð sitt vera manndómsvígslu. 10. júní 2016 11:00