Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana, segir að hann myndi íhuga að draga Bandaríkin úr Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), verði hann kjörinn forseti.
Trump lét orðin falla í þætti NBC, „Meet the Press“ í morgun. Útspilið er það nýjasta í röð skilaboða þar sem Trump hótar að draga Bandaríkin úr alþjóðastofnunum og samstarfi, verði hann kjörinn forseti.
Í frétt Huffington Post segir að óvild Trump í garð viðskiptasamninga stofnunarinnar sé vel þekkt. Segir hann stofnunina stuðla að viðskiptaójöfnuði í landinu og segir hana vera „stórslys“.
Trump hefur áður sagt að hann myndi vilja koma á 15 til 35 prósenta skatti á vörur bandarískra fyrirtækja sem flytja framleiðslustörf sín erlendis.
Þegar spyrillinn Chuck Todd sagði að WTO myndi nú ekki samþykkja slíka skatta brást við Trump við með því að segja að þá yrðu Bandaríkin að endursemja eða einfaldlega segja upp aðild sinni að stofnuninni. „Þessir viðskiptasamningar eru stórslys, Chuck. Alþjóðaviðskiptastofnunin er stórslys,“ sagði Trump.
Trump vill endursemja eða draga Bandaríkin út úr WTO
Atli Ísleifsson skrifar
Mest lesið




Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans
Viðskipti innlent

Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic
Viðskipti erlent

Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili
Viðskipti innlent


Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta
Viðskipti innlent

Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní
Viðskipti innlent

Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“
Viðskipti innlent