Októberspá Siggu Kling – Vog: Þú þarft bara að lyfta símtólinu og hringja 7. október 2016 09:00
Elsku hjartans Vogin mín. Nú er að duga eða drepast og þá er bara einn kostur, að duga. Þú ert að fara yfir á hátind ársins, sem er þessi mánuður. Hafðu ekki áhyggjur þó að eitthvað sé að gerast, það er bara til að leiða þig á beinu brautina. Lífið hefur lag á að leysa sig sjálft og það er að gera það. Þú færð tilboð um að taka að þér eitthvert nýtt hlutverk sem yrði bara viðbót við það sem þú ert að gera. Þú þarft að skella þér í boxhringinn. Það verður ekkert nema óvæntur og spennandi endir. Þú þarft að hafa fyrir hlutunum á næstunni og það verður létt verk um leið og þú hugsar að þú getir það. Það er eins og þú sért að endurforrita hugann. Þú ert með betri skilning á hversu sterk þú ert. Leiðindi gærdagsins og erfiðleikarnir sem þú áttir við að stríða eru að fara til fortíðar. Það býr svo mikill leiðtogakraftur í þér og þú þarft að spyrja þig: Er ég í réttri vinnu? Er ég í réttum skóla? Er ég glöð í því sem ég geri? Því núna er nákvæmlega tíminn til að taka nýjar ákvarðanir og færa sig til. Sjálfstraust þitt er að eflast og þú tekur hlutina ekki eins nærri þér og þú gerðir á sama tíma í fyrra. Þetta er svo sannarlega tíminn þinn og það verður mikill kraftur í merkinu þínu fram í byrjun desember. Á þessum tíma þarftu að ljúka skipulagi og skrifa niður hvernig þú ætlar að leikstýra þessu lífi. Það kemur mikið af skilaboðum til þín sem eru send í gegnum fólk sem þú jafnvel þekkir ekki, kemur rétt inn í líf þitt en breytir því samt og fer snögglega aftur. Það er að myndast svo mikill kraftur og orka og það er ástæðan fyrir því að þú ert byrjuð í maraþoninu og komin langt á undan öðrum, þú þarft bara að taka eftir því. Fjárfestingar í einhverju skemmtilegu passa akkúrat vel núna. Þú virðist sjá það að þú eigir meiri peninga en þú bjóst við. Og svo sannarlega áttu nóg af vinum en þú átt til að gleyma því. Það er alveg ljóst að draumar hafa ekki síðasta söludag og sem betur fer átt þú þér marga drauma og það er mjög margt að koma til þín núna og næstu mánuði. Fólk mun koma þér á óvart. Það mun skilja þig betur og það verður auðveldara fyrir þig að gera það sem þú ert að gera því þú átt eftir að finna að fólkið fylgir þér. Ef þér finnst þú vera einmana er það alfarið þín sök. Þú þarft bara að lyfta símtólinu og hringja og það eru allir tilbúnir að vera með þér. Það gæti verið heilmikið að gerast í ástamálum því það er allt á suðupunkti. Ef þú ert ánægð í þínu samband skaltu bara efla það, það væri besta lausnin. Annars geturðu fengið það sem þú vilt en þú þarft að bera þig eftir því. Ekki vera hrædd um höfnun, það er ekki í kortunum þínum. Núna eða aldrei væri æðislegt slagorð fyrir næsta tíma. Knús og klapp, Sigga Kling Sigga býður upp á þjónustunámskeið fyrir fyrirtæki af öllum t0ga: Hópefli – hressingarfyrirlestur sem getur verið hentugur í hádegishlé eða í byrjun vinnudags. Einnig tekur hún að sér hópa sem vilja eiga jákvæða og gleðilega kvöldstund. Þeir sem hafa áhuga gefa haft samband við Siggu með því að senda tölvupóst á siggakling@gmail.com
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Fjörðurinn og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Fleiri fréttir „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Sjá meira