Trump segir að tilvonandi utanríkisráðherra sinn sé "í heimsklassa“ Tryggvi Páll Tryggason skrifar 11. desember 2016 14:18 Rex Tillerson er forstjóri Exxon Mobil. Vísir/Getty
Donald Trump, næsti forseti Bandaríkjanna, talaði afar vel um Rex Tillerson, forstjória olíufélagsins Exxon Mobil í sjónvarpsviðtali í gær. Fastlega er gert ráð fyrir því að Tillerson verði utanríkisráðherra Trump. Trump var í viðtali á sjónvarpsstöðinni Fox News og þar hrósaði hann Tillerson í hástert fyrir alla „þá ótrúlegu samninga sem hann hefur gert.“ „Hann er í heimsklassa,“ sagði Trump. „Hann stýrir olíufélagi sem er um það bil tvöfalt stærra en næsti samkeppnisaðili.“ Tillerson hefur í gegnum tíðina stundað mikil viðskipti í Rússlandi og er sagður eiga í góðum samskiptum við Vladimir Pútín, forseta Rússlands. Hefur hann meðal annars gagnrýnt refsiaðgerðir Vesturlanda gagnvart Rússum í tengslum við átökin á Krímskaga en þar hafa Bandaríkjamenn verið fremstir í flokki. Gert er ráð fyrir því að Tillerson verði tilnefndur af Trump sem utanríkisráðherra í næstu viku en líklegt þykir að John Bolton, sem áður var sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum verði aðstoðarutanríkisráðherra.
Donald Trump Tengdar fréttir Trump sagður ætla að skipa forstjóra olíufyrirtækis í embætti utanríkisráðherra Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, er sagður ætla að útnefna Rex Tillerson, forstjóra olíufyrirtækisins ExxonMobil, næsta utanríkisráðherra landsins. 10. desember 2016 21:51 Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Fleiri fréttir „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Sjá meira
Trump sagður ætla að skipa forstjóra olíufyrirtækis í embætti utanríkisráðherra Donald Trump, verðandi Bandaríkjaforseti, er sagður ætla að útnefna Rex Tillerson, forstjóra olíufyrirtækisins ExxonMobil, næsta utanríkisráðherra landsins. 10. desember 2016 21:51