Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Telma Tómasson og Lovísa Arnardóttir skrifa 2. október 2026 06:45 Myndin er tekin á mótmælum nemenda í Saint Denis nærri París í gær. Vísir/EPA Sébastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, sá ástæðu til að boða ríkisstjórn sína til neyðarfundar í gær vegna mótmæla sem áttu upptök sín í skólum landsins en hann telur hættu á að þróist yfir í óeirðir og róstur á götum úti. Hefur forsætisráðherrann varað við því að mótmæli nemenda gætu magnast og leitt til frekari átaka.
Framhaldsskólanemendur hófu að mótmæla skorti á kennurum, lélegu húsnæði, löngum skóladögum á Parísarsvæðinu í síðustu viku og óbærilegum hita í skólastofum í hitabylgju í vor. Mótmælin breiðst hratt út um allt land og kemur fram í frétt franska miðilsins Le Monde að mótmælin hafi haft áhrif í 1.027 af þeim 3.700 skólum sem eru í Frakklandi. Óeirðalögregla var kölluð til á mótmæli nemenda í Saint Denis nærri París. Vísir/EPA Eftir því sem fram kemur í The Guardian hópuðust ungmenni saman á meira en 900 stöðum víðs vegar um landið og þurfti að loka 160 skólum í framhaldinu. Vegatálmar voru settir upp á sumum stöðum og fólki meinaður aðgangur að um 30 háskólasvæðum í gær, þar á meðal í París og Marseille. Nærri þrjú þúsund framhaldsskólanemar, á aldrinum 15 til 18 ára, hafa verið handteknir frá því að mótmælin hófust, þar af 1.949 á fimmtudaginn, samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu. Þá kemur fram í frétt Guardian að yfir 300 lögreglumenn og tugir slökkviliðsmanna, kennara og nemenda hafa slasast. Édouard Geffray, menntamálaráðherra, mun eiga fund með fulltrúum nemenda í dag og þá hafa skólayfirvöld verið hvött til að nýta fjarkennslu til að tryggja öryggi nemenda
Frakkland Skóla- og menntamál Loftslagsmál Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Tengdar fréttir Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn. 27. júní 2026 10:50 Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Slökkviliðsmenn á Englandi og í Frakklandi berjast nú við fjölda gróðurelda í enn einni hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. Hiti nálgaðist fjörutíu gráður í London í gær. 14. ágúst 2026 09:54 Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Á fjórða hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda í Frakklandi og á Spáni. Evrópusambandið segir þetta eina umfangsmestu rýmingaraðgerð sem ráðist hefur verið í í álfunni. Íslensk kona var meðal þeirra sem þurftu að leita í fjöldahjálparstöð í Toledo. 27. júlí 2026 21:01 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn. 27. júní 2026 10:50
Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Slökkviliðsmenn á Englandi og í Frakklandi berjast nú við fjölda gróðurelda í enn einni hitabylgjunni sem gengur yfir Evrópu. Hiti nálgaðist fjörutíu gráður í London í gær. 14. ágúst 2026 09:54
Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Á fjórða hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda í Frakklandi og á Spáni. Evrópusambandið segir þetta eina umfangsmestu rýmingaraðgerð sem ráðist hefur verið í í álfunni. Íslensk kona var meðal þeirra sem þurftu að leita í fjöldahjálparstöð í Toledo. 27. júlí 2026 21:01