Enrique Pena Nieto, forseti Mexíkó, greindi frá því á Twitter síðu sinni í dag að hann hefði afboðað komu sína á fund með Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, en Trump hafði hvatt Mexíkósk stjórnvöld til að hætta við fundinn væru þau ekki reiðubúinn til að borga vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Reuters segir frá þessu.
„Í morgun tilkynntum við Hvíta húsinu að við myndum ekki mæta á vinnufund með forseta Bandaríkjanna sem áætlaður var á næsta þriðjudag.” segir Nieto.
Veggurinn er eitt helsta kosningaloforð Trump en hann hefur ítrekað haldið því fram að hann muni þvinga Mexíkó til að borga fyrir vegginn. Talið er að verkið muni kosta um fjórtán milljarða dala, sem samsvara um 1.582 milljörðum króna. Landamæri ríkjanna eru rúmlega þrjú þúsund kílómetra löng.
Sjá einnig: Bandaríkin borga vegginn og Mexíkó verður rukkað síðar
Stjórnvöld í Mexíkó segja það hins vegar ekki koma til greina og mögulegt er að reikningurinn mundi enda hjá skattgreiðendum í Bandaríkjunum. Talið er að verkið muni kosta um fjórtán milljarða dala, sem samsvara um 1.582 milljörðum króna. Landamæri ríkjanna eru rúmlega þrjú þúsund kílómetra löng.
Nieto ítrekar þó vilja Mexíkó til að vinna með Bandaríkjunum í átt að lausn sem hugnist báðum þjóðum.
„Mexíkó ítrekar þó vilja til að vinna með Bandaríkjunum að því að ná samkomulagi sem er báðum þjóðum til heilla”
Forseti Mexíkó afboðar fund með Donald Trump vegna deilna um landamæravegginn
Tengdar fréttir

Trump ætlar að vísa allt að þremur milljónum úr landi
Segist ætla að einblína á ólöglega innflytjendur sem eru glæpamenn.

Bandaríkin borga vegginn og Mexíkó verður rukkað síðar
Talið er að verkið muni kosta um fjórtán milljarða dala, sem samsvara um 1.582 milljörðum króna.

Trump fyrirskipar byggingu múrsins við Mexíkó
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur skrifað undir fyrirskipun þess efnis að múr við landamæri Mexíkó skuli reistur hið snarasta.

Trump og forseti Mexíkó ræddu ekki hver myndi borga fyrir landamæravegginn
Donald Trump og Enrique Pena hittust á fundi í kvöld.

Trump ítrekar að veggurinn verði byggður og að Mexíkóar muni borga brúsann
Donald Trump, forsetaframbjóðandi Repúblikana í Bandaríkjunum, segist ekkert hafa hvikað frá þeirri stefnu sinni að reisa vegg á milli Bandaríkjanna og Mexíkó, nái hann kjöri í nóvember næstkomandi.