Eina liðið sem Ísland vann á HM í Frakklandi er lélegasta liðið á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2017 13:33 Edvaldo í leik á móti Íslandi. Vísir/EPA
Landslið Angóla endaði í 24. og neðsta sæti á HM í handbolta í Frakklandi eftir sex marka tap á móti Barein, 26-32, í leiknum um 23. sæti sætið sem var upp á það að forðast júmbósæti keppninnar. Angóla er eina liðið sem íslenska landsliðið náði að vinna á mótinu en Ísland vann lið Angóla með fjórtán mörkum í fjórða leik sínum í riðlakeppninni. Íslenska liðið gerði jafntefli á móti bæði Túnis og Makedóníu auk þess að tapa með einu marki á móti Slóveníu en leikurinn gegn Angóla er sá ein sem íslensku strákarnir lönduðu sigri. Sigur Barein var sannfærandi en liðið var komið í 10-5 um miðjan fyrri hálfleik, leiddi 15-13 í hálfleik og komst síðan strax aftur fjórum mörkum yfir í upphafi seinni hálfleiksins. Barein komst mest sjö mörkum yfir en í lokin varð munurinn sex mörk. Angóla hafði tapað ellefu mörkum á móti Japan í fyrsta leik sínum í neðri hluta Forsetabikarsins. Angóla var að keppa á sinni þriðju heimsmeistarakeppni en liðið endaði í 20. sæti á HM í Túnis 2005 og í 21. sæti á HM í Þýskalandi tveimur árum síðar. Þetta er því slakasti árangur liðsins á heimsmeistaramóti.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Sjá meira