Gary Martin kveður landið sem gaf honum allt: „Þar til næst, Ísland, takk fyrir allt“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. febrúar 2017 12:30 Gary Martin í leik með Víkingi á móti KR en hann spilaði líka fyrir vesturbæjarliðið. vísir/ernir
Gary Martin, enski framherjinn sem spilaði með ÍA, KR og Víkingi í Pepsi-deild karla í fótbolta, kveður Ísland með söknuði í Facebook-færslu sem hann setti inn áður en hann flaug til Belgíu í nótt. Gary, sem setti svo sannarlega svip sinn á íslenskan fótbolta þau sex ár sem hann spilaði hér á landi, samdi við belgíska úrvalsdeildarliðið Lokeren í janúar en hann spilaði síðast með Víkingi í efstu deild og skoraði þar fimm mörk í þrettán leikjum. Englendingurinn, sem kom fyrst til Íslands árið 2010 til að spila fyrir ÍA, var hér á landi að ná í restina af dótinu sínu. Þessi 26 ára gamli markahrókur, sem varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari og tvisvar sinnum bikarmeistari með KR, fer fallegum orðum um Ísland í stuttu kveðjubréfi. Hann segir Ísland vera llandið sem gaf honum tækifæri á að spila áfram fótbolta þegar ferillinn á Englandi sigldi í strand. „Síðasti dagurinn sem ég bý á Íslandi. Sá tími er kominn að ég flyt frá landinu sem gaf mér í raun og veru allt; fallega eiginkonu, þrjá frábæra ketti og tækifæri til að spila áfram fótbolta þegar ég var 19 ára gamall,“ segir Gary í hugljúfri Facebook-færslu. „Nú er kominn tími til að skrifa nýjan kafla í bókina með Lokeren í Belgíu. Þar til næst, Ísland, takk fyrir allt,“ segir Gary Martin. Gary er búinn að spila þrjá leiki fyrir Lokeren nú þegar, þar af einn sem byrjunarliðsmaður, en á eftir að skora fyrir belgíska liðið.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira