Þrátt fyrir þrjú töp í röð er önnur sigurganga liðsins enn lifandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2017 15:00 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir í leik sem Skallagrímur vann á Ásvöllum. Vísir/Eyþór
Skallagrímskonur heimsækja Stjörnuna í Garðabæinn í Domino´s deild kvenna í kvöld en síðustu leikir hafa reynst nýliðunum úr Borgarnesi erfiðir. Skallagrímur tapaði á móti Keflavík í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni og hefur síðan tapað báðum deildarleikjum sínum sem voru á móti Snæfelli og Val. Fyrir þessa þriggja leika taphrinu hafði Skallagrímsliðið unnið ellefu leiki í röð í deild og bikar. Þrátt fyrir þessi þrjú töp í röð er samt önnur sigurganga Borganesliðsins enn lifandi. Bikarúrslitaleikurinn var í Höllinni og síðustu tveimur deildarleikjum tapaði liðið á heimavelli sínum í Fjósinu í Borgarnesi. Sigurganga Skallagríms á útivelli lifir því enn góðu lífi. Skallagrímskonur hafa unnið sjö síðustu útileiki sína í deildinni eða alla deildarleiki utan Borgarness frá og með 30. nóvember síðastliðnum. Síðasta tap Skallagríms á útivelli kom á móti Snæfelli í Stykkishólmi 9. nóvember 2016 eða fyrir 105 dögum. Leikur Stjörnunnar og Skallagríms verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4 og hefst útsendingin klukkan 19.05.Sjö sigurleikir Skallagríms í röð á útivelli 30. nóvember - 11 stiga sigur í Grindavík (72-61) 11. desember - 36 stiga sigur á Haukum á Ásvöllum (74-38) 17. desember - 6 stiga sigur í Njarðvík (78-72) 11. janúar - 13 stiga sigur á Snæfelli í Stykkishólmi (80-67) 25. janúar - 16 stiga sigur í Grindavík (83-67) 1. febrúar - 6 stiga sigur á Haukum á Ásvöllum (61-55) 4. febrúar - 13 stiga sigur í Njarðvík (73-60)
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Sjá meira