Borgarfulltrúar afsala sér launahækkun Kjararáðs Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. apríl 2017 13:15 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var einn þeirra sem samþykkti tillöguna í gær. visir/vilhelm
Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær tillögu forsætisnefndar borgarinnar um að gera breytingar á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa. Borgarfulltrúar afsala sér þar með launahækkun samkvæmt úrskurði Kjararáðs um hækkun þingfararkaups auk þess sem laun þeirra eru ekki lengur tengd framtíðarákvörðunum ráðsins en hingað til hafa laun kjörinna fulltrúa miðast við 78,82 prósent af þingfararkaupi. Laun borgarfulltrúa munu framvegis hins vegar fylgja launavísitölu samkvæmt tillögunni sem samþykkt var í gær með níu atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata gegn atkvæði Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina. Aðrir borgarfulltrúar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. „Ef hækkanir hefðu tekið gildi samkvæmt úrskurði Kjararáðs um hækkun þingfararkaups hefðu grunnlaun borgarfulltrúa hækkað úr kr. 593.720 í kr. 856.949 en með samþykkt borgarstjórnar í dag munu grunnlaun borgarfulltrúa hækka úr kr. 593.720 í kr. 633.505 eða um 6,7%. Með samþykkt borgarstjórnar nú verða hækkanir á launum allra kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg innan viðmiða Salek-samkomulagsins auk þess sem þau muna héðan í frá taka breytingum í samræmi við launavísitölu í stað þess tengingu við þingfararkaup,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en tillagan sem samþykkt var er eftirfarandi: „Lagt er til að samþykkt verði að gera breytingar á samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg þannig að heildarlaunakostnaður borgarfulltrúa og þóknanir annarra kjörinna fulltrúa taki framvegis breytingum til samræmis við launavísitölu. Grunnlaunin skulu miða við þróun launavísitölu frá síðasta úrskurði kjararáðs fyrir upphaf tímabilsins sem rammasamkomulag aðila vinnumarkaðarins miðar við, þ.e. marsmánuð 2013, og uppfærast í janúar og júlí ár hvert. Breytingin skal miðast við 1. nóvember 2016 og er skrifstofustjóra borgarstjórnar falið að vinna nauðsynlegar breytingar á samþykktinni.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira