Fullyrt að Hart fari til Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. apríl 2017 13:00 Joe Hart hefur spilað í ítölsku deildinni í vetur. Vísir/Getty
Framtíð enska landsliðsmarkvarðarins Joe Hart virðist í óvissu en ólíklegt er að hann verði áfram í láni hjá Torino á Ítalíu. Hart var lánaður til Torino síðastliðið haust eftir að Pep Guardiola, nýr stjóri Manchester City, fékk Claudio Bravo til liðsins sem nýjan aðalmarkvörð. Hart á enn tvö ár eftir af samningi sínum við City en Torino mun ekki hafa efni á því að kaupa leikmanninn, sem er sagður kosta 20 milljónir punda, jafnvirði 2,8 milljarða króna. Það er enska götublaðið The Sun sem fullyrðir að Liverpool muni í sumar kaupa Joe Hart frá City, þrátt fyrir að Simon Mignolet hafi átt ágæta leiki í marki Liverpool síðustu vikurnar. ESPN svaraði fréttinni og hafði eftir ónefndum heimildum að Liverpool hefði engan áhuga á að fá Hart í sínar raðir. Hart, sem fagnar 30 ára afmæli sínu í dag, var lánaður til Ítalíu þar sem forráðamenn City voru ekki reiðubúnir að leyfa honum að fara til keppinauta sinna í ensku úrvalsdeildinni. Sú afstaða hefur mildast og er líklegt að City sé nú reiðubúið að sleppa tökunum af Hart. Hart er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Torino sem er í níunda sæti ítölsku 1. deildarinnar með 45 stig.
Ítalski boltinn Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Sjá meira