Lazio skoraði fimm á hálftíma | Emil og félagar aftur á sigurbraut Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. apríl 2017 15:06 Keita og félagar fengu að fagna að vild í dag. Vísir/getty
Leikmenn Lazio buðu upp á sannkallaða flugeldasýningu á upphafsmínútum leiksins í 6-2 sigri á Palermo í ítölsku deildini í dag en á 26. mínútu leiksins voru heimamenn komnir 5-0 yfir og búnir að gera út um leikinn. Ítalski framherjinn Ciro Immobile byrjaði leikinn af krafti og kom Lazio 2-0 yfir með mörkum á 8. og 10. mínútu leiksins en þá var komið að liðsfélaga hans í sókninni, Balde Keita. Keita skoraði þrjú mörk á fimm mínútna kafla, eitt af vítapunktinum og var staðan skyndilega fimm núll. Ótrúlegar tölur á Ólympíuvellinum í Rómarborg. Varnarmaðurinn Andrea Rispoli náði aðeins að klóra í bakkann fyrir gestina með tveimur mörkum á fimm mínútna kafla en Luca Crecco innsiglaði sigurinn með sjötta marki Lazio í uppbótartíma. Lazio er því með sex stiga forskot á AC Milan í baráttunni um sæti í Evrópudeildinni á næsta ári eftir að AC Milan missteig sig á heimavelli og tapaði óvænt gegn Empoli sem berst í kjallara deildarinnar 1-2 á San Siro í dag. Empoli komst 2-0 yfir í upphafi seinni hálfleiks og náði gamla ítalska stórveldið ekki að brúa það en heimamenn brenndu af vítaspyrnu í leiknum. Þá lék Emil Hallfreðsson allar 90. mínúturnar í 2-1 sigri Udinese á Cagliari en Udinese siglir lygnan sjó um miðja deild þegar skammt er eftir af tímabilinu. Udinese brenndi af vítaspyrnu í fyrri hálfleik en tvö mörk á þriggja mínútna kafla tryggðu sigurinn og kom mark Cagliari frá Marco Boriello á 86. mínútu því ekki að sök.Úrslit dagsins: AC Milan 1-2 Empoli Chievo 1-3 Torino Lazio 6-2 Palermo Sampdoria 1-2 Crotone Udinese 2-1 Cagliari
Ítalski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Sjá meira