Fékk gula spjaldið fyrir að mótmæla kynþáttaníði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. maí 2017 16:45 Muntari fær gula spjaldið. vísir/getty
Sulley Muntari, leikmaður Pescara, fékk gula spjaldið fyrir að mótmæla kynþáttaníði sem hann varð fyrir frá stuðningsmönnum Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Muntari sagðist hafa bent dómara leiksins, Daniele Minelli, á kynþáttaníð sem hann varð fyrir og beðið um að leikurinn yrði stöðvaður. Dómarinn, sem virtist ekki hafa heyrt níðsöngvana, spjaldaði hins vegar Muntari. Ganverjinn gekk þá af velli í mótmælaskyni. Á leið sinni af vellinum lenti hann í orðaskaki við stuðningsmenn Cagliari. „Hvað átti ég að gera? Standa þarna og láta þetta yfir mig ganga? Það hefði gefið slæmt fordæmi. Við þurfum að stöðva þetta,“ sagði Muntari í viðtali eftir leik. Zdenek Zeman, hinn gamalreyndi knattspyrnustjóri Pescara, var ekki jafn hrifinn af þessu uppátæki Muntaris. „Muntari skildi okkur eftir einum færri. Hann ákvað að fara af velli þegar við gátum enn gert eitthvað í leiknum. Stuðningsmenn Cagliari beittu hann kynþáttaníði og hann bað dómarann um að gera eitthvað í málinu. Þess vegna gekk hann af velli,“ sagði Zeman. Pescara tapaði leiknum með einu marki gegn engu.vísir/gettyvísir/gettyvísir/getty
Ítalski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Sjá meira