Hæstiréttur staðfesti dóm yfir smyglurunum fjórum í Norrænu-málinu Kolbeinn Tumi Daðason og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 18. maí 2017 15:00 Frá meðferð málsins í Hæstarétti. vísir/gva
Hæstiréttur dæmdi í dag þá Davíð Berndsen Bjarkason, Baldur Guðmundsson, Angelo Uyleman og Peter Schmitz í fangelsi fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl með Norrænu í september 2015. Í héraði var Davíð dæmdur í átta og hálfs árs langt fangelsi, Baldur í átta ár og þeir Angelo og Peter í fimm ára fangelsi. Hæstiréttur lét dóm Héraðsdóms Reykjavíkur standa óraskaðan. Fjórmenningarnir voru ákærðir fyrir að hafa flutt inn til landsins annars vegar 19,5 kíló af amfetamíni og hins vegar 2,5 kíló af kókaíni en efnin voru falin í Volkswagen Touran sem Angelo kom á hingað til lands þann 22. september 2015. Angelo var ákærður fyrir flutninginn á efnunum hingað til lands og Peter ákærður fyrir að hafa undirbúið og aðstoðað þann fyrrnefnda vegna ferða hans hingað til Íslands. Angelo fór af landi brott þann 25. september og kom aftur þremur dögum síðar. Þá var Peter með honum í för. Þeir Baldur og Davíð voru svo ákærðir fyrir að hafa skipulagt innflutninginn á fíkniefnunum til Íslands og að hafa fjármagnað kaupin á efnunum að hluta. Fjórmenningarnir voru allir dæmdir til að greiða laun verjenda sinna. Baldur, Angelo og Peter þurfa að greiða verjendum sínum um 1,9 milljónir króna hver, en Davíð Berndsen þarf að greiða verjanda sínum rúmar tvær milljónir króna samkvæmt dómi Hæstaréttar. Sakborningar voru ekki viðstaddir dómsuppkvaðninguna.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira