Halldór Viðar Sanne ákærður fyrir fjársvik Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. júní 2017 12:40 Halldór Viðar Sanne hefur áður hlotið dóma fyrir fjársvik. Vísir
Gefin hefur verið út ákæra á hendur Halldóri Viðar Sanne fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdrátts en hann hefur verið í gæsluvarðhaldi samfleytt frá 28. mars síðastliðnum. Hæstiréttur staðfesti í vikunni áframhaldandi varðhald yfir Halldóri til 21. júlí næstkomandi en hann hefur áður hlotið dóma fyrir fjársvik.Fréttablaðið greindi fyrst frá meintum svikum Halldórs nú þann 18. mars síðastliðinn en þá sagði Bergljót Snorradóttir farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti við hann. Kvaðst hún hafa greitt honum leigu fyrirfram fyrir einbýlishús í Njarðvík sem Halldór átti ekki heldur var sjálfur með í leigu. Í kjölfarið ræddi Fréttablaðið við fleira fólk sem taldi sig hlunnfarið í viðskiptum við Halldór.Halldór á að baki nokkurn feril í svikum og prettum.Í greinargerð lögreglu eru talin upp níu mál sem hún hefur haft til rannsóknar um meint brot Halldórs. Snúa þau að fjársvikum og fjárdrætti meðal annars en upphæðirnar sem Halldór er talinn hafa svikið út úr fólki nema allt að 1,3 milljónum króna. Að sögn lögreglu beinist hin meintu brot Halldórs oft að fólki sem sé í erfiðri aðstöðu vegna erfiðs leigumarkaðar og um sé að ræða brotahrinu sem verði að stöðva.
Tengdar fréttir Halldór Viðar Sanne sætir áframhaldandi gæsluvarðhaldi Hæstiréttur hefur úrskurðað Halldór Viðar Sanne, dæmdan fjársvikari, í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. maí næstkomandi. Lögregla rannsakar nú umfangsmikil fjársvik Halldórs en fjölmargir aðilar hafa lagt fram kæru á hendur honum. 6. maí 2017 10:32 Halldór Sanne telur sig hafðan fyrir rangri sök Halldór Viðar Sanne, dæmdur fjársvikari, segist beittur órétti og röngum sakargiftum. Hann situr í gæsluvarðhaldi grunaður um milljónasvik með því að hafa fé af fólki á leigumarkaði. 31. mars 2017 06:00 Lengja gæsluvarðhald yfir Halldóri Sanne: „Brotahrina sem þurfi að stöðva“ Hæstiréttur hefur lengt gæsluvarðhald yfir Halldóri Viðari Sanne vegna rannsóknarhagsmuna. Lögregla rannsakar nú umfangsmikil fjársvik Halldórs en fjölmargir aðilar hafa lagt fram kæru á hendur honum. 8. apríl 2017 10:51 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira
Halldór Viðar Sanne sætir áframhaldandi gæsluvarðhaldi Hæstiréttur hefur úrskurðað Halldór Viðar Sanne, dæmdan fjársvikari, í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. maí næstkomandi. Lögregla rannsakar nú umfangsmikil fjársvik Halldórs en fjölmargir aðilar hafa lagt fram kæru á hendur honum. 6. maí 2017 10:32
Halldór Sanne telur sig hafðan fyrir rangri sök Halldór Viðar Sanne, dæmdur fjársvikari, segist beittur órétti og röngum sakargiftum. Hann situr í gæsluvarðhaldi grunaður um milljónasvik með því að hafa fé af fólki á leigumarkaði. 31. mars 2017 06:00
Lengja gæsluvarðhald yfir Halldóri Sanne: „Brotahrina sem þurfi að stöðva“ Hæstiréttur hefur lengt gæsluvarðhald yfir Halldóri Viðari Sanne vegna rannsóknarhagsmuna. Lögregla rannsakar nú umfangsmikil fjársvik Halldórs en fjölmargir aðilar hafa lagt fram kæru á hendur honum. 8. apríl 2017 10:51