Alþjóðlegt gervifyrirtæki skráð á Íslandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. júní 2017 23:30 Vefsíðan MyFabricFactory.com er ein gerviverslananna sem sér um þvætti á færslum vegna fjárhættuspila á netinu. Skjáskot
Gervivefverslanir, sem bjóða upp á vörur til heimilisnota, eru notaðar í stórum stíl sem skálkaskjól fyrir greiðslur vegna ólöglegra fjárhættuspila á netinu. Fyrirtækið Agora, sem virðist halda úti fjölda þessara gervivefverslana, er skráð á Íslandi.Blaðamenn Reuters fjölluðu um málið á vefsíðu sinni í dag. Kannaðar voru sjö vefsíður sem allar eru upprunnar í Evrópulöndum. Vefsíðurnar gera sig út fyrir að vera sölusíður og selja hluti á borð við efnisstranga, hulstur fyrir DVD-myndir og umbúðapappír. Þessar vefsíður eru gerviverslanir og í gegnum þær er unnið úr greiðslum vegna fjárhættuspila á netinu. Gerviverslanirnar bjóða þannig upp á svokallað „færsluþvætti“ en fjárhættuspil eru ólögleg í mörgum löndum og einhverjum fylkjum Bandaríkjanna. Færsluþvættið, sem talið er liður í stafrænni þróun peningaþvættis, fer þannig fram að ein netverslun vinnur úr greiðslukortafærslu fyrir hönd annarrar netverslunar og felur uppruna færslunnar. Gerviverslanirnar gerðu fyrst vart við sig síðla árs 2016 en á meðal verslananna er vefsíðan Myfabricfactory.com. Blaðamaður Reuters keypti efnisstranga á síðunni en pöntunin var aldrei afgreidd – og að endingu endurgreidd.Skráð á Íslandi Þegar haft var samband við símanúmer, sem gefið var upp á vefsíðunni MyFabricFactory.com, var blaðamanni Reuters tjáð að hann hefði náð samband við fyrirtæki að nafni Agora Online Services, greiðsluþjónustufyrirtæki, sem samkvæmt Reuters hefur skráðar bækistöðvar á Íslandi. Fyrirtækið, sem einnig er tengt öðrum fyrirtækjum frá Bretlandi og Þýskalandi, heyrir undir enn annað fyrirtæki sem skráð er á Máritíusi, eyríki á Indlandshafi. Starfsmenn Agora, sem Reuters náði sambandi við, virðast vinna við að svara fyrirspurnum viðskiptavina um peningafærslur. Ef hringt er inn næst samband við starfsmann sem segir viðkomandi peningafærslu tengjast fjárhættuspilum. Fyrirtækið virðist því sérhæfa sig í úrvinnslu á slíkum færslum en í frétt Reuters er sérstaklega minnst á pókergreiðslur. Annar skráðra eigenda Angora vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en fyrirtækið virðist hluti af stóru neti vefverslana sem skráðar eru hjá fyrirtækjum víðsvegar um Evrópu, þar á meðal í Georgíu og Lettlandi auk Íslands. Blaðamenn Reuters lögðu inn pantanir á sex vefsíðum til viðbótar en þær reyndust allar vera í eigu Agora. Eftir að blaðamenn náðu sambandi við starfsmenn vefsíðanna hættu síðurnar að taka við pöntunum en hafa þó ekki verið teknar niður.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira