Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Samúel Karl Ólason skrifar 1. september 2026 16:36 Lindsay Clancy í dómsal í Plymouth í Massachusetts í dag. AP/Greg Derr, The Patriot Ledger Kviðdómendur í máli Lindsay Clancy sögðu dómara í dag að þeir gætu ekki komist að einróma niðurstöðu um það hvort hún sé sakhæf eða ekki fyrir að myrða þrjú ung börn sín. Dómarinn bað kviðdómendur um að reyna aftur en þeir hafa reynt að komast að niðurstöðu í fjóra daga. Í janúar 2023 myrti Clancy þrjú börn sín og reyndi síðan að svipta sig lífi. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Sjá einnig: „Hún drap börnin“ Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða. Málið gegn Clancy hefur verið mikið milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð. Sjá einnig: Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Verði Clancy fundin sek á hún yfir höfði sér ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Verði hún talin hafa verið ósakhæf verður hún vistuð á geðsjúkrahúsi ríkisins. Sjá einnig: Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kviðdómendur höfðu ekki gefið til kynna fyrir daginn í dag að þeir ættu í vandræðum með að komast að niðurstöðu. „Ég veit að þetta voru löng réttarhöld,“ sagði William Sullivan, dómarinn. „Ég veit að vitni voru fleiri en áttatíu. Það voru rúmlega þrjú hundruð sönnungargögn. Þess vegna verð ég að biðja ykkur um að fara aftur fram.“ AP fréttaveitan er með beina útsendingu frá dómshúsinu, sem sjá má í spilaranum hér að neðan. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Dagný Ósk látin Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sjá meira
Í janúar 2023 myrti Clancy þrjú börn sín og reyndi síðan að svipta sig lífi. Lögmenn Clancy hafa ekki neitað því að hún hafi myrt börnin en segja hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Sjá einnig: „Hún drap börnin“ Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Börnin voru fimm ára, þriggja ára og átta mánaða. Málið gegn Clancy hefur verið mikið milli tannanna á fólki vestanhafs. Margir sýna henni samhug og telja málið sýna skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Aðrir vilja að Clancy sé refsað, þar sem morðin hafi verið skipulögð. Sjá einnig: Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Verði Clancy fundin sek á hún yfir höfði sér ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Verði hún talin hafa verið ósakhæf verður hún vistuð á geðsjúkrahúsi ríkisins. Sjá einnig: Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín Kviðdómendur höfðu ekki gefið til kynna fyrir daginn í dag að þeir ættu í vandræðum með að komast að niðurstöðu. „Ég veit að þetta voru löng réttarhöld,“ sagði William Sullivan, dómarinn. „Ég veit að vitni voru fleiri en áttatíu. Það voru rúmlega þrjú hundruð sönnungargögn. Þess vegna verð ég að biðja ykkur um að fara aftur fram.“ AP fréttaveitan er með beina útsendingu frá dómshúsinu, sem sjá má í spilaranum hér að neðan. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Dagný Ósk látin Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sjá meira