Le Pen rannsökuð fyrir fjármálamisferli Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. júní 2017 16:17 Marine Le Pen laut í lægra haldi fyrir Emmanuel Macron í forsetakosningunum í Frakklandi fyrir skömmu. Vísir/AFP
Marine Le Pen, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, liggur undir grun fyrir meint fjármálamisferli. Málið er í formlegri rannsókn. BBC greinir frá. Fjármálamisferlið er tengt Evrópuþinginu en þingið grunar að um fimm milljónir evra hafi verið greiddar aðstoðarmönnum Þjóðfylkingarinnar, stjórnmálaflokks Le Pen. Talið er að aðstoðarmennirnir hafi í raun ekki starfað fyrir þingmenn Evrópuþingsins heldur notað fjármunina til vinnu fyrir Þjóðfylkinguna. Bæði Þjóðfylkingin og Le Pen neita öllum ásökunum. Þá segir Le Pen málið hvatt áfram af pólitískum öflum. Greiðslurnar eru raktar allt til ársins 2012 og tengjast Le Pen sjálfri auk annarra þingmanna Evrópuþingsins, sem einnig starfa innan Þjóðfylkingarinnar. Ásakanirnar komu fyrst fram í lok apríl, rétt fyrir seinni umferð forsetakosninganna í Frakklandi. Le Pen neitaði að svara spurningum varðanda málið á meðan kosningabaráttunni stóð en sagðist myndu vera samvinnuþýð eftir að kosningunum lyki. Þjóðfylking Le Pen hefur gagnrýnt Evrópuþingið harðlega í gegnum tíðina. Sérfræðingur BBC í París sagði flesta kjósendur flokksins nú þegar uggandi í garð Evrópuþingsins og taldi ekki líklegt að þeir líti málið sérstaklega alvarlegum augum.
Tengdar fréttir Bandalag Macron fékk um þriðjung atkvæða Nýr flokkur Emmanuel Macron hlaut þriðjung atkvæða í fyrri umferð frönsku þingkosninganna í gær og gæti náð afgerandi meirihluta í þinginu. Sósíalistaflokkur fráfarandi forseta galt afhroð og tapar hátt í 200 þingsætum. 12. júní 2017 08:11 Evrópuþingmenn stinga fé til skrifstofuhalds í eigin vasa Hver þingmaður á Evrópuþinginu fær sem samsvarar um 483 þúsund íslenskum krónum skattfrjálst á mánuði til að halda skrifstofu í heimalandi sínu. 1. júní 2017 07:00 Le Pen breytir um áherslur í Evrópumálum Aðalhagfræðingur frönsku Þjóðfylkingarinnar segir flokkinn hafa hlustað á meiningu frönsku þjóðarinnar. 22. maí 2017 19:42 Le Pen viðurkennir ósigur: Emmanuel Macron næsti forseti Frakklands Marine Le Pen hefur viðurkennt ósigur í forsetakosningunum í Frakklandi. 7. maí 2017 18:21 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira
Bandalag Macron fékk um þriðjung atkvæða Nýr flokkur Emmanuel Macron hlaut þriðjung atkvæða í fyrri umferð frönsku þingkosninganna í gær og gæti náð afgerandi meirihluta í þinginu. Sósíalistaflokkur fráfarandi forseta galt afhroð og tapar hátt í 200 þingsætum. 12. júní 2017 08:11
Evrópuþingmenn stinga fé til skrifstofuhalds í eigin vasa Hver þingmaður á Evrópuþinginu fær sem samsvarar um 483 þúsund íslenskum krónum skattfrjálst á mánuði til að halda skrifstofu í heimalandi sínu. 1. júní 2017 07:00
Le Pen breytir um áherslur í Evrópumálum Aðalhagfræðingur frönsku Þjóðfylkingarinnar segir flokkinn hafa hlustað á meiningu frönsku þjóðarinnar. 22. maí 2017 19:42
Le Pen viðurkennir ósigur: Emmanuel Macron næsti forseti Frakklands Marine Le Pen hefur viðurkennt ósigur í forsetakosningunum í Frakklandi. 7. maí 2017 18:21