Júlíspá Siggu Kling – Hrútur: Ástalífið er alveg „on fire“ 7. júlí 2017 09:00
Elsku Hrúturinn minn. Þegar þú ert búinn að taka til í kringum þig og ákveða hvernig líf þú vilt eiga þá virðist ekkert geta snert þig. Þú ert manneskja með yfirburðahæfileika og það er ekki í tíðni þinni að láta neitt stoppa þig. Þegar ég er að tala um hindrun getur það tengst áfengi eða annarri notkun sem slær þig niður, það eina sem áfengi gerir fyrir þig er að lama hugann. Þú ert svo mikil baráttumanneskja og fyrirmynd fyrir aðra að þegar þú ákveður að láta ekkert stoppa þig þá bíður þín beinn og breiður vegur. Í kortunum þínum næstu mánuði eru plánetur þínar lagðar eins og meistaraverk, þannig að ef þú gerir allt í hófi þá verður þetta besta partí sem þú munt fara í. Það vilja allir hafa þig í vinnu, en ekki síst í þeim partíum sem fólk vill hafa eitthvert fútt í. Þótt þú sért mjög kraftmikill þá þarftu að fá að ráðstafa tíma þínum. Ef þér finnst eins og það sé verið að kúga þig þá skaltu skoða vel möguleikana á að finna þér aðra leið út úr hlutverkinu sem þú ert í, hvort sem það er vinna eða samband. Allur „business“ eða verkefni ganga vel því þú ert í ham! En þú munt njóta þess sérstaklega þegar september kemur, núna ertu meira í því að plana og tengja þig við þá sem gefa lífinu gildi. Ástalífið er alveg „on fire“ en elskaðu bara þá sem eiga það virkilega skilið. Þú ert svo sterk kynvera að þú skalt passa þig á að elska ekki bara út af kynlífi, það er í raun og veru bara ábót í lífi þínu og getur orðið til þess að þú takir rangar ákvarðanir. Og þeir sem eru á lausu í þessu blessaða merki þurfa þar af leiðandi líka að hafa það algjörlega á hreinu að vera hrifnir af karakternum og geta hugsað sér að verja lífi sínu með þessari manneskju. Þú ert í sterkasta stjörnumerkinu í sambandi við dugnað og ákvarðanatöku. En ef þér finnst eins og ekkert sé að gerast þá er það bara vegna þess að þú ert að vorkenna þér, það er versti kraftur sem þú getur hleypt inn í líf þitt. Þú skalt einblína á það fjall sem þú þarft að klífa og svo skaltu einbeita þér að vandamálunum, horfast í augu við þau, þá hverfa þau. Mottóið þitt er: Þú gefur lífinu lit svo taktu áhættu! Ást og friður, Sigga Kling Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365 miðla, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fleiri fréttir „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Sjá meira