Lífið

Blokk 925: Strákarnir í bölvuðu veseni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í öllum verkefnum komum upp vandamál þegar maður er að taka íbúð sína í gegn. Eitt slíkt vandamál er komið upp í strákateyminu í þáttunum Blokk 925 á Stöð 2.

Á sunnudagskvöldum er nýr þáttur á Stöð 2 á dagskrá og er hann í umsjón Sindra Sindrasonar en þátturinn ber nafnið Blokk 925.

Í þáttunum verður fylgst með tveimur vinateymum taka hvort sína íbúðina á Ásbrú í gegn. Markmiðið er að sýna hvernig hægt sé að eignast sitt eigið heimili án þess að borga mörg hundruð þúsund krónur fyrir fermetrann.

Teymin tvö sem gera íbúðirnar upp hafa það að markmiði að finna ódýrar og sniðugar lausnir. Þetta eru 80 fermetra t-laga íbúðir með gluggum á einni hlið.

Þetta eru annars vegar tveir strákar og hins vegar tvær stelpur. Strákarnir eru nýbúnir að klára BA í arkitektúr en önnur stelpnanna er í húsgagnasmíði og innanhússhönnun en hin er áhugamaður.

Í síðasta þætti kom ákveðið vandamál upp í liðinu hjá Óla Geir og Lárusi Frey en þeir ætluðu að nota glugga, sem búið var að fylla upp í, til að fá birtu inn í íbúðina.

Vandamálið sem kom upp er að ekki er víst að reglugerðir varðandi brunavarnir geri þeim kleyft að setja glerið aftur í gluggarammann.

Hér að ofan má sjá brot úr síðasta þætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.