Spáir því að Conte fari innan árs Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. ágúst 2017 10:00 Antonio Conte. Vísir/Getty
Þrátt fyrir að Antonio Conte hafi gert Chelsea að Englandsmeistara í vor telur Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur Sky sports, ekki að hann verði langlífur í starfi. „Það kæmi mér mjög á óvart ef að ég myndi sitja hér eftir tólf mánuði og hann væri enn knattspyrnustjóri Chelsea,“ sagði hann. „Ég tel að hann sé sú týpa af stjóra sem mun ekki taka vel í afskiptasemi stjórnenda félagsins.“ Conte hefur sagt að tímabilið fram undan verði það erfiðasta á ferlinum en hann mun vera ósáttur við hvernig Chelsea hefur vegnað á leikmannamarkaðnum í sumar. Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur margsinnis sýnt að hann er óhræddur við að að skipta um knattspyrnustjóra ef honum sýnist svo. Hann rak Jose Mourinho tvívegis og þeir Carlo Ancelotti, Luiz Felipe Scolari og Claudio Ranieri entust ekki í tvö ár í starfi. „Chelsea er með sitt viðskiptamódel og það er afar óvægið. Knattspyrnustjórinn er ekki í jafn miklum metum og hjá öðrum félögum og finnst mér Chelsea svipa til Real Madrid að því leyti,“ sagði Carragher enn fremur. „Þeir óttast ekki að reka knattspyrnustjórann sinn eftir eitt ár í starfi en það er í raun ekki hægt að kvarta. Ég held að ekkert félag hafi unnið fleiri titla síðan að Abramovich kom inn í deildina [árið 2003].“ Chelsea tapaði fyrir Arsenal um helgina er liðin mættust í leiknum um Samfélagsskjöldin. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira