Enski boltinn

Fyrir­liði Chelsea undir hnífinn

Aron Guðmundsson skrifar
Reece James hvetur hér sína menn til dáða fyrir leik gegn Hull á dögunum
Reece James hvetur hér sína menn til dáða fyrir leik gegn Hull á dögunum Vísir/Getty

Reece James, fyrir­liði enska úr­vals­deildar­félagsins Chelsea, hefur gengist undir minni­háttar að­gerð á hné sökum meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu með liði sínu.

Frá þessu greinir Chelsea í yfirlýsingu en gefur ekki upp tímaramma varðandi endurkomu fyrirliðans á völlinn.

James var ekki í leikmannahópi Chelsea í stórsigri liðsins gegn Bournemouth um síðastliðna helgi. 

Í yfirlýsingu Chelsea segir að endurhæfing fyrirliðans sé nú þegar hafin.

Reece James er 26 ára gamall og uppalinn hjá Chelsea. Hann hefur komið við sögu í sex leikjum á yfirstandandi tímabili en alls spilað 235 leiki fyrir félagið, skorað 16 mörk og gefið 31 stoðsendingu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×