Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2026 15:54 Alex Iwobi skoraði sigurmarkið gegn Hull í dag. Getty/Silvina Brodersohn Alex Iwobi skoraði eina mark leiksins á 33. mínútu eftir að Norðmaðurinn Sander Berge hafði verið fljótur að átta sig og kom boltanum á hann í vítateignum. Undir lok leiks, í upphafi uppbótartíma, var Ryan Sessegnon rekinn af velli fyrir slæma tæklingu en það kom þó ekki í veg fyrir sigur heimamanna. Þar með eru Fulham-menn lausir úr botnsætinu og komnir upp í 15. sæti með fimm stig en Hull er enn í 9. sæti með níu stig. Tottenham er nú í botnsætinu en á leik til góða við Coventry á mánudagskvöld. Enski boltinn Fulham FC Hull City AFC