Tveggja háskólamanna leitað vegna morðs Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. ágúst 2017 07:59 Wyndham Lathem og Andrew Warren eru grunaðir um að hafa orðið hinum 25 ára gamla Trenton Cornell-Duranleau að bana. Lögreglan í Chicago
Lögregla leitar nú tveggja manna um gjörvöll Bandaríkin vegna morðs sem framið var í borginni Chicago. Handtökuheimildir hafa verið gefnar út á hendur háskólaprófessornum Wyndham Lathem og starfsmanni Oxford-háskóla, Andrew Warren. Lathem og Warren er leitað vegna gruns um aðild að dauða hins 25 ára gamla Trenton Cornell-Duranleau. Ungi maðurinn, sem starfað hafði sem förðunarfræðingur í Chicago, fannst látinn í íbúð Lathem þann 27. júlí síðastliðinn. Hann hafði verið stunginn fjölmörgum sinnum og látist af sárum sínum, að því er kemur fram í frétt Guardian um málið. Lögregla í Chicago biðlar nú til mannanna að „gera hið rétta í stöðunni og gefa sig fram við lögreglu.“.Wanted for Murder by CPD - Our search will only intensify. Prof Latham & Mr Warren, do the right thing & turn yourself in to any police dept pic.twitter.com/fwWkcfFfco— Anthony Guglielmi (@AJGuglielmi) August 2, 2017 Wyndham Lathem er prófessor í örverufræði við Northwestern-háskólann í Illinois en Andrew Warren starfar við fjármáladeild Oxford-háskóla í Englandi. Lögregla varar almenning við því að hinir grunuðu séu taldir „vopnaðir og hættulegir“ og hafi mögulega hvítan fólksbíl af tegundinni Hyundai Sedan til umráða.
Mest lesið 51 prósent sé nóg Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Svandís segir nei Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Fleiri fréttir Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Sjá meira