Engar vísbendingar um svik í kosningunum í Kenía Kjartan Kjartansson skrifar 10. ágúst 2017 10:43 Óeirðir hafa blossað upp í Kenía eftir forsetakosningarnar þar á þriðjudag. Vísir/AFP
Evrópskir kosningaeftirlitsmenn segjast ekki hafa séð neinar vísbendingar um að niðurstöðum forsetakosninganna í Kenía hafi verið hagrætt eins og frambjóðandi stjórnarandstöðunnar fullyrti í gær. Yfirmaður kjörstjórnar Kenía hafnaði fullyrðingum Rail Odinga, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, um að tölvuþrjótar hefðu breytt talningu atkvæða og gefið Uhuru Kenyatta forseta forskot í gær. Kenyatta hafði nokkuð öruggan sigur í kosningunum. Mótmæli brutust út í gær í höfuðvígum stjórnarandstöðunnar í höfuðborginni Naíróbí og Kisumum í vesturhluta landsins. Að sögn Reuters-fréttastofunnar skutu lögreglumenn að minnsta kosti þrjá mótmælendur til bana og mótmælendur bönuðu þeim fjórða. Marietje Schaake, aðalkosningaeftirlitsmaður Evrópusambandsins í Kenía, segir engin merki um miðstýrða eða staðbundna hagræðingu á kosningunum. Lokaskýrsla hennar muni fara yfir talningarferlið í kosningunum, að sögn Reuters. Deilurnar nú vekja upp slæmar minningar hjá Keníamönnum en 1.100 mannst létust í óöld eftir umdeildar kosningar árið 2007 og hundruð þúsunda þurftu að flýja heimili sin.
Tengdar fréttir Mótmæli eftir ásakanir um kosningasvindl Mótmæli og óeirðir brutust út í Kenía í dag eftir að leiðtogi stjórnarandstöðunnar sagði að átt hefði verið við niðurstöður forsetakosninganna þar í landi. 9. ágúst 2017 20:00 Stjórnarandstaðan í Kenía fullyrðir að brögð hafi verið í tafli Forsetaframbjóðandi kenísku stjórnarandstöðunnar fullyrðir að tölvuþrjótar hafi brotist inn í tölvukerfi kjörstjórnar og hagrætt úrslitum. Talning bendir til þess að sitjandi forseti landsins hafi unnið öruggan sigur. 9. ágúst 2017 10:57 Mest lesið Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Fleiri fréttir Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Sjá meira
Mótmæli eftir ásakanir um kosningasvindl Mótmæli og óeirðir brutust út í Kenía í dag eftir að leiðtogi stjórnarandstöðunnar sagði að átt hefði verið við niðurstöður forsetakosninganna þar í landi. 9. ágúst 2017 20:00
Stjórnarandstaðan í Kenía fullyrðir að brögð hafi verið í tafli Forsetaframbjóðandi kenísku stjórnarandstöðunnar fullyrðir að tölvuþrjótar hafi brotist inn í tölvukerfi kjörstjórnar og hagrætt úrslitum. Talning bendir til þess að sitjandi forseti landsins hafi unnið öruggan sigur. 9. ágúst 2017 10:57