Þjálfari Skallagrímskvenna fékk jafnlangt bann og Finnur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. október 2017 10:30 Ricardo Gonzalez Mynd/Stöð 2 Sport
Richi Gonzalez og Finnur Freyr Stefánsson voru báðir dæmdir í eins leiks bann vegna háttsemi sinnar í Meistarakeppni KKÍ um síðustu helgi. Þeir fengu sömu refsingu þótt að Gonzalez hafi reynt að hafa afskipti af leiknum eftir að hann var rekinn út. KKÍ segir frá þessu á heimasíðu sinni. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara KR, var rekinn út úr húsi þegar KR tapaði á móti Þór Þorlákshöfn í Meistarakeppni karla. Hann mun taka út bannið í leik KR og Njarðvík í fyrstu umferð Domino´s deildar karla í kvöld. Richi Gonzalez, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Skallagrími, var rekinn út úr húsi í sínum fyrsta keppnisleik sem þjálfari liðsins þegar Skallagrímur tapaði fyrir Keflavík í Meistarakeppni kvenna. Gonzalez hélt áfram að reyna að stýra liðinu eftir að hann var rekinn út en það þyngir þó ekkert refsingu hans hjá aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambandsins.Sjá einnig:Braut þjálfari Skallagríms reglur eftir að hann var rekinn út út húsi í gær? | Myndband Það gefur þjálfurum einskonar grænt ljóst á það í framtíðinni að finna leiðir til að stýra liðum sínum þótt að það sé búið að reka þá út úr húsi því refsingin þyngist ekki við það. Richi Gonzalez stýrði Skallagrímsliðinu í sigri á Njarðvík í fyrstu umferð Domino´s deildar kvenna í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gær en missir hinsvegar af fyrsta heimaleik tímabilsins. Bannið tók gildi í dag og því missir Richi Gonzalez af leik Skallagríms og Snæfells í 2. umferð Domino´s deildar kvenna um helgina.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Fleiri fréttir Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Sjá meira