Tottenham lét Real Madrid hafa fyrir hlutunum á Santiago Bernabeau í kvöld. Liðið skiptu með sér stigunum í leik sem endaði 1-1.
Raphael Varane skoraði sjálfsmark sem kom Tottenham yfir í leiknum en Cristiano Ronaldo jafnaði með marki úr vítaspyrnu.
Tottenham fékk tækifæri til þess vinna leikinn í síðari hálfleik en nýtti ekki færin sin.
Real og Tottenham eru jöfn í efstu sætum riðilsins með sjö stig. APOEL og Dortmund eru aðeins með eitt.
Tottenham sótti sterkt stig til Madridar
