Að minnsta kosti sjö leikskólar á höfuðborgarsvæðinu lokað deildum Nadine Guðrún Yaghi skrifar 21. október 2017 19:30
Að minnsta kosti sjö leikskólar í Reykjavík og í Kópavogi hafa þurft að grípa til þess á síðustu tveimur vikum að loka deildum vegna manneklu. Leikskólastjórar segja að ástandið hafi ekki verið verra síðan fyrir hrun. Afar illa hefur gengið að ráða starfsfólk í leikskóla og hafa leikskólar á höfuðborgarsvæðinu þurft að grípa til ýmissa úrræða á undanförnum vikum. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg þurfti að grípa til þess neyðarúrræðis að stytta opnunartíma í átta leikskólum í síðustu viku – með því að opna síðar að morgni eða loka fyrr. Á tveimur leikskólum hefur verið gripið til þess að loka deildum þannig að hvert barn sé heima 3 daga í mánuði. Staðan er svipuð í Kópavogi en í síðustu viku þurftu fjórir leikskólar að loka deildum hjá sér. Tveir voru með lokaðar deildir í gær og í dag. Þá tóku sumir leikskólar þá ákvörðun í haust, þegar sá í hvað stefndi, að opna ekki allar deildir þessa önnina. Leikskólinn Sæborg er einn þeirra en að sögn Soffíu Þorsteinsdóttur, leikskólastjóra, gengur illa að ráða starfsfólk. Inga Jóna Hilmisdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Sunnuás, tekur í sama streng en hún hefur þurft að loka deildum. Hún segir að ástandið sé slæmt. Hún hafi auglýst eftir starfsfólki en að fáir sæki um. Þá sé ómögulegt sé að fá menntaða leikskólakennara. Hún telur að það séu fyrst og fremst vinnuaðstæður sem valdi manneklunni.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Sækja slasaðan mann að Háafossi Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Árekstur á Suðurlandsbraut Nokkrir handteknir vegna mannsláts Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Rannsaka manndráp á Kársnesi Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Sjá meira