Innlent

Hópi manna vísað úr landi grunaður um að ætla fremja of­beldis­verk

Telma Tómasson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. Vísir

Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Fjöldi virkra brotahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á áratug og í nýrri löggæsluáætlun er lagt til að stofnuð verði ný eining innan lögreglunnar sem fari með rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Þá verður sagt frá alvarlegu lestarslysi á Spáni, en að minnsta kosti þrjátíu eru sagðir látnir og fjöldi er slasaður eftir að tvær hraðlestir rákust á í Toledo á Mið-Spáni í morgun. Óttast er að tala látinna sé mun hærri. Tveir vagnar ultu niður hlaðinn kant sem járnbrautarteinarnir liggja á og má sjá brak víða og mikið tjón á lestunum á myndum í erlendum fréttamiðlum. Áreksturinn varð á milli bæjanna Mora og Orgaz og Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun.

Grindavíkurbær metur nú nýja stöðu sem upp er komin eftir að lögregla hætti í gær leit að Lúðvíki Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 10. janúar 2024. Ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir og telst formlegri leit af hálfu lögreglu lokið. 

Við höldum áfram að fjalla um umfangsmikil fjársvik tveggja manna af Landsbankanum, sem hófust á því að annar þeirra millifærði fimmtíu þúsund krónur á hinn, án þess að peningur færi út af reikningi hans. Í framhaldinu sviku þeir út tæplega hundrað milljónir króna.

Annar tveggja eigenda netverslunarinnar Sante segir áform ríkisins um að hefja heimsendingu á áfengi merkileg í ljósi þess að lög kveði á um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að því. Nú þurfi forsvarsmenn vínbúðanna að fara að ákveða hvort ÁTVR sé lýðheilsustofnun eða verslun sem keppir um viðskiptavini.

Og svo mætir Henry Birgir með sportið og byrjar að fjalla um framherjann Andra Lucas Guðjohnsen sem hefur farið mikinn með Blackburn síðustu vikur.

Fjölbreyttur hádegisfréttatími á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×