Þau bestu í liðinni körfuboltaviku Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. nóvember 2017 18:45 Úrvalslið 5. umferðar Domino's deildar karla
Síðustu umferðir í Domino's deildum karla og kvenna í körfubolta voru gerðar upp að vanda í gærkvöld í Domino's Körfuboltakvöldi. Eins og alltaf þá tilnefndu sérfræðingarnir lið umferðarinnar og leikmenn umferðarinnar. Í karlaflokki var fimmta umferðin kláruð í gær. Lið umferðarinnar var skipað Degi Kár Jónssyni úr Grindavík, Sigtryggi Arnari Björnssyni úr Tindastól, Reggie Dupree frá Keflavík og ÍR-ingunum Ryan Taylor og Danero Thomas. Þjálfari ÍR, Borce Ilievski, var þjálfari liðsins. ÍR-ingar unnu sterkan karakterssigur á Stjörnunni í framlengdum leik á fimmtudag. Taylor og Danero fóru fyrir ÍR-ingum í leiknum og voru báðir með yfir 20 stig. Reggie skoraði úr helmingi skota sinna í sigri Keflavíkur á Þór Þ. og skoraði 13 stig ásamt því að stela 6 boltum. Dagur Kár var með 83 prósenta skotnýtingu og 26 framlagspunkta í sigri Grindavíkur á Hettil. Sigtryggur Arnar skoraði 26 stig fyrir Tindastól þegar liðið sigraði Hauka og reif niður fimm fráköst. Leikmenn umferðarinnar voru Hallveig Jónsdóttir og Ryan Taylor. Hallveig átti frábæran leik fyrir Val gegn Stjörnunni. Hún var með 62 prósenta skotnýtingu ásamt því að hitta úr öllum þremur vítaskotum sínum. Hún hirti fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar, var stigahæst með 28 stig og skilaði inn 30 framlagspunktum. Taylor var stigahæstur ÍR-inga í sigrinum á Stjörnunni. Hann skoraði 28 stig, en var þó aðeins með 42 prósenta skotnýtingu. Hann tók ekki nema þrettán fráköst í leiknum, fiskaði átta villur og var með 31 í framlag.7. umferð Domino's deildar kvenna var spiluð í vikunni. Í úrvalsliði umferðarinnar voru valdar Valskonurnar Guðbjörg Sverrisdóttir og Hallveig Jónsdóttir, Snæfellingarnir Berglind Gunnarsdóttir og Kristen McCarthy og Ragna Margrét Brynarsdóttir úr Stjörnunni. Þjálfari umferðarinnar var þjálfari Skallagríms, Ricardo Gonzales. Skallagrímskonur unnu þriggja stiga sigur á Haukum, 68-65.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira