Vetrarspá Siggu Kling – Steingeitin: Lífið vill gefa þér miklu meiri sigra 3. nóvember 2017 09:00
Elsku hjartans Steingeitin mín, ég þarf svo nauðsynlega á þér að halda. Ef ég vil hafa allt fullkomið og ekkert stress ræð ég Steingeit í málið. Það var Steingeit sem skrifaði bækurnar mínar meðan ég talaði, hélt ég væri Halldór Laxness trúlega, já ég hef gefið út tvær metsölubækur; Orð eru álög var fyrsta bókin mín sem varð metsölubók og Töfraðu fram lífið var önnur bókin, sem varð ekki metsölubók, en ég keypti bara þúsund eintök og þá varð hún það. Svo skilaboðin til þín eru elsku frábæra, pottþétta duglega Steingeitin mín,að ef þig langar í bein þarftu að fara út og grafa það upp sjálf. Það er ekkert frítt í þessari veröld og þú þarft að sleppa tökunum og muna að þú ert ekki Guð, því lífið vill gefa þér miklu meiri sigra en þú hefur. Einu sinni var stödd hjá mér mjög merkileg Steingeit sem heitir Guðjón. Við vorum að gera svona „Secret“ spjald sem þýðir að við skrifum niður, eða festum myndir, á blað allt það sem við viljum að gerist. Hann fann rosa stóra mynd af rauðum bikar og þennan duglega dreng langaði til að verða frægur fótboltamaður og vinna mikla sigra. Áður en tíu mínútur liðu (og ég hef vitni) hringdi í hann þjóðþekktur maður úr fótboltanum og bauð honum að spila erlendis. Guðjón greip tækifærið og tók áskoruninni og það liðu ekki margir mánuðir þangað til þessi drengur vann þann mikla sigur með þessu liði að hann fékk nákvæmlega eins bikar og hann óskaði eftir, reyndar bláan. Svo þú þarft bara að trúa elskan mín og þora til að fá þann bikar sem þú átt svo sannarlega skilið að fá! Það getur vel verið að ég hafi sagt þér þessa sögu áður, en hvað um það. Skilaboðin til þín eru að þú verður að trúa að draumar þínir rætist svo að þeir rætist Bikarinn er alveg að koma til þín en þú verður að sjá það mjög skýrt að þú getir náð árangri og það eina sem getur stoppað þig er efinn um að þú getir náð árangri, sem getur verið svo ömurlega leiðinlegt. Þú hefur mjög sterka hugarorku en stundum of litla trú á sjálfri þér, en til þess að verða sigurvegari þarft þú að trúa því að þú sért höfundur að ævisögunni þinni. Það er engum neitt að þakka hvernig þér gengur, og í raun heldur engum að kenna hvernig þér gengur, þetta er allt bara afstaða þín til lífsins, svo hafðu ekki áhyggjur. Það eina sem er að gerast hjá þér núna heitir bara LÍFIÐ. Ekki vorkenna sjálfri þér, taktu frekar Pollýönnu, sem er einstök og jákvæð persóna, þér til fyrirmyndar og ef þú veist ekki hver hún er gúgglaðu hana bara. Þú ert nefnilega sú manneskja að þegar þú elskar, hvort sem er hugmynd eða manneskju, gerirðu það með stæl og ert algjörlega ósigrandi. Setningin þín er: Ég er sigurvegari – The Winner takes it all (ABBA)Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Fjörðurinn og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Fleiri fréttir „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Sjá meira