Kaupa 1,45 prósenta hlut í Kviku Kristinn Ingi Jónsson skrifar 2. nóvember 2017 09:15 Miklar breytingar hafa orðið á hluthafahópi Kviku á undanförnum mánuðum og misserum. Vísir/GVA
Einkahlutafélagið RPF, sem er í jafnri eigu Gunnars Sverris Harðarsonar og Þórarins Arnars Sævarssonar, starfsmanna fasteignasölunnar RE/MAX Senter, er komið í hluthafahóp Kviku fjárfestingarbanka með 1,45 prósenta hlut. Er félagið þannig orðið fjórtándi stærsti hluthafi bankans. Félagið keypti hlutinn af fjárfestingafélaginu Vörðu Capital, en eins og greint var frá í Markaðinum í gær hefur síðarnefnda félagið selt allan hlut sinn í Kviku. Varða Capital, sem er að stærstum hluta í eigu viðskiptafélaganna Jónasar Hagans Guðmundssonar og Gríms Garðarssonar, var áður fimmti stærsti hluthafi bankans með 7,7 prósenta eignarhlut. Auk RPF keyptu meðal annars hjónin Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir, sem eiga Johan Rönning, og Einar Sveinsson fjárfestir hlut Vörðu Capital. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa bréf í Kviku verið að ganga kaupum og sölum að undanförnu á genginu 6 til 6,3 krónur á hlut. Varða Capital átti tæplega 112 milljónir hluta að nafnverði í bankanum og því má áætla að félagið hafi fengið samtals í kringum 700 milljónir króna fyrir 7,7 prósenta hlut sinn í Kviku.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira