Segja Trump ekki hafa sagt alla innflytjendur frá Haítí vera með alnæmi Samúel Karl Ólason skrifar 23. desember 2017 22:31 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Hvíta húsið þvertekur fyrir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi sagt að allir innflytjendur frá Haítí væru með alnæmi. New York Times segir forsetann hafa haldið þessu fram á ríkisstjórnarfundi í júní. Þar á hann einnig að hafa sagt að innflytjendur frá Nígeríu myndu „aldrei fara aftur í kofana sína“ eftir að hafa komið til Bandaríkjanna og að Afganistan væri fullt af hryðjuverkamönnum. Sarah Huckabee Sanders, talskona Hvíta húsins, gagnrýndi New York Times harðlega í dag og sagði að allir sem hefðu verið á fundinum segðu Trump ekki hafa látið þessi ummæli falla. Hún sagði þá „neita þessum svívirðilegu ásökunum og það er sorglegt og lýsandi að New York Times skyldi prenta þessar lygar þeirra nafnlausu heimildamanna,“ sagði Sanders samkvæmt frétt CNN. Á umræddum fundi var verið að ræða fjölda innflytjenda sem hefðu fengið landvistarleyfi í Bandaríkjunum á árinu. Samkvæmt umfjöllun Times var Trump reiður yfir þeim fjölda og sagði að verið væri að gera lítið úr loforði hans að takmarka fjölda innflytjenda. Blaðamenn Times ræddu við sex manns sem annað hvort voru á fundinum eða vissu hvað fór þar fram. Tveir þeirra sögðu Trump hafa látið umrædd orð falla en aðrir sögðust ekki muna eftir því.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira