Davíð Snorri ráðinn til KSÍ: Alltaf verið markmið að geta einbeitt mér að fullu að knattspyrnuþjálfun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2018 11:39 Davíð Snorri Jónasson. Vísir/Andri Marinó
Davíð Snorri Jónasson hefur tekið við sem þjálfari sautján ára landsliðs karla í fótbolta. Davíð mun jafnframt sjá um þjálfun sextán ára karla og verður aðstoðarþjálfari nítján ára landsliðs karla og hefur hann þegar hafið störf. Knattspyrnusambandið segir frá þessu á heimasíðu sinni í dag en Davíð Snorri er hættur sem aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild karla. Davíð hefur unnið í kringum knattspyrnu lengi, þjálfað yngri flokka hjá Leikni Reykjavík og Stjörnunni ásamt því að vera þjálfari meistaraflokks karla hjá Leikni Reykjavík og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Stjörnunni. „Tilfinningin er mjög góð. Þetta er spennandi verkefni í krefjandi umhverfi sem ég hlakka til að takast á við,“ sagði Davíð Snorri í fréttinni á heimasíðu KSÍ. Hann hefur þegar hafið störf hjá KSÍ og er um að ræða fullt starf sem er skiljanlega töluverð breyting frá því að þjálfa félagslið: „Ég mun geta einbeitt mér að fullu að knattspyrnuþjálfun sem hefur alltaf verið markmið hjá mér. Mesta breytingin er að fara af æfingavellinum alla daga og vinna með afmarkaðan hóp eins og maður gerir hjá félagsliði. Í starfi mínu sem landsliðsþjálfari mun ég vera í miklum samskiptum við félögin og fylgjast með þeim aldursflokkum sem tilheyra yngri landsliðunum,“ sagði Davíð Snorri.
Íslenski boltinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira