Mourinho: Eina sem Scholes gerir er að gagnrýna Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. janúar 2018 11:30 Scholes hefur verið að láta sína menn heyra það. vísir/getty
Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, var ekki hrifinn af því að Paul Scholes, fyrrum miðjumaður United, væri að gagnrýna miðjumann sinn, Paul Pogba. Scholes sagði eftir markalausa jafnteflið gegn Southampton að Pogba liti ekki út fyrir að vera leikmaður sem ynni leiki fyrir sitt félag og fyrir slíka menn væri verið að greiða 90 milljónir punda fyrir. „Það eina sem Scholes gerir er að gagnrýna. Scholes verður í sögubókunum sem stórkostlegur knattspyrnumaður en ekki sem álitsgjafi,“ sagði Mourinho augljóslega pirraður á ummælum Scholes. „Það geta ekki allir verið frábærir eins og Scholes var. Stundum spilar Pogba vel og stundum ekki. Hann er samt alltaf að reyna sitt besta. Það er ekki Pogba að kenna að hann sé ríkari en Scholes. Þannig er bara fótboltinn í dag.“ Scholes, sem vann deildina ellefu sinnum með United, sagði meira um Pogba sem fór í taugarnar á Mourinho. „Hann er bara á röltinu í leikjum. Hann lítur ekki út fyrir að vera í formi. Ég velti fyrir mér hvort hann sé að æfa eins og maður. Það ætti enginn að eiga möguleika gegn honum en hann er beðinn um að spila rullu sem honum líður ekki vel í. Stjórinn þarf að taka ábyrgð á því,“ sagði Scholes og Mourinho svaraði. „Ef Paul ákveður einhvern tímann að verða knattspyrnustjóri þá óska ég þess að hann nái 25 prósent af mínum árangri. Það er í kringum sex titlar. Ef hann nær því þá verður hann ánægður.“
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Dagskráin: Stórlið í eldlínunni Sport 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Sjá meira