Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2026 12:47 Erling Haaland er ansi smár í samanburði við Hafþór Júlíus Björnsson sem hóf líka Jan Åge Fjørtoft á loft. Samsett/Viaplay/@thorbjornsson Hafþór Júlíus Björnsson, eða Fjallið, vakti mikla athygli á Old Trafford í gær þar sem hann fylgdist með nágrannaslag Manchester United og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
Viku eftir að hafa sýnt líkamlega yfirburði sína með því að vinna Giants Strongman Open aflraunamótið í Birmingham, var Hafþór Júlíus mættur á Old Trafford að horfa á fótbolta í gær. Hann fékk að labba inn á grasið fyrir leik og var til að mynda gripinn í spjall við Jan Åge Fjørtoft í beinni útsendingu Viaplay. Fjørtoft bað Hafþór um að sýna hvernig hann myndi fara að því að stöðva Haaland. „Og plís ekki brjóta nein lög eða reglur,“ sagði Fjørtoft. Hafþór hóf hann þá á loft án þess að blása úr nös áður en taugatrekktur Fjørtoft sendi boltann á sjónvarpskonuna Jules Breach í setti. Breach og sérfræðingum hennar var greinilega skemmt og hún grínaðist með að líklega hefði Fjørtoft ætlað að segja „plís ekki brjóta nein bein“. Eftir að hafa horft á 1-0 sigur City-manna þá hitti Hafþór svo reyndar Haaland, sem skorað hafði umdeilt sigurmark leiksins. Hafþór birti mynd af þeim saman á samfélagsmiðlum sínum og af viðbrögðum að dæma er fylgjendum hans svo sannarlega skemmt að sjá hvernig stór og stæðilegur fótboltamaður lítur út við hlið vöðvafjalls eins og Hafþórs. „Hitti annan víking,“ skrifaði Hafþór og viðbrögðin létu ekki á sér standa. „Það eru ekki margir sem láta Haaland líta út eins og smástrák,“ skrifaði einn í athugasemdakerfi Hafþórs á Instagram. „Þetta er eins og pabbi sem tók strákinn sinn með á leikinn,“ skrifaði annar og sá þriðji bætti við: „Maður veit að Thor er stór strákur þegar hann lætur Haaland líta út fyrir að vera lítill.“
Enski boltinn Manchester City Manchester United Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira