Námsmenn með tekjur langt undir tekjuviðmiðun og hafa beðið breytinga í átta ár Heimir Már Pétursson skrifar 25. janúar 2018 15:58
Tveir þingmenn þrýstu á menntamálaráðherra á Alþingi í morgun að skipa sem fyrst í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna og marka stefnu varðandi framfærslu þeirra sem væri undir tekjuviðmiðun velferðarráðuneytisins í dag. Þá hafa þingmenn fimm flokka lagt fram þingsályktun um sálfræðiþjónustu í háskólum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar er fyrsti flutningsmaður þingsályktunar þingmanna í Viðreisn, Samfylkingu, Vinstri grænum, Pírötum og Flokki fólksins um að auka aðgengi að sálfræðiþjónustu fyrir háskólanema í opinberum háskólum frá og með skólaárinu 2018–2019. Jafnframt leiti menntamálaráðherra leiða til að efla sálfræðiþjónustu í öðrum háskólum en opinberum. Hvort tveggja verði gert í samráði við háskólana sjálfa, Sálfræðingafélag Íslands og heilbrigðisráðherra. Í fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun vakti Þorgerður Katrín líka athygli á bágri stöðu og óvissu sem stúdentar byggju við varðandi framfærslu sína. „Nú er það svo að stúdentar hafa beðið í allnokkurn tíma, eiginlega nokkuð mikið langan tíma, eftir kjarabótum og að tekin sé ákvörðun um raunverulegt framtíðar skipulag á lánasjóðnum. Það hafa verið þrjár endurskoðunarnefndir í gangi og sú fjórða er nú á leiðinni,” sagði Þorgerður Katrín á Alþingi í morgun. Frumvarpsdrög hafi verið kynnt um lánamál stúdenta í tíð Katrínar Jakobsdóttur og Illuga Gunnarssonar í menntamálaráðuneytinu með ólíkum áherslum, sem hvorug hafi náð fram að ganga. Nú boði menntamálaráðherra enn eina stefnumótunina. „Allan tímann sitja stúdentarnir sjálfir á hakanum. Jafnvel sumir þeirra sem voru að hefja nám þegar endurskoðunarvinnan hófst eru að ljúka doktorsprófi í dag. Þetta langur er tíminn,” sagði Þorgerður Katrín. Hún ýtti eftir því að skipað yrði í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna svo hægt væri að marka stefnuna í málefnum stúdenta.Menntamálaráðherra lofar aðgerðum og betrumbótumLilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sagði rétt að endurskoðun á lögum um LÍN hefði tekið allt of langan tíma eða átta ár. Hún vildi vanda til verka við skipan í stjórn LÍN. „Háttvirtur þingmaður þarf ekki að hafa áhyggjur af því að þessi ráðherra verði aðgerðarlaus hvað þetta varðar. Ég hlakka líka til að vinna með háttvirtum þingmanni að framgangi þessara mála. Ég vil líka segja að að ég er mjög ánægð með þá þingsályktunartillögu sem háttvirtur þingmaður boðar. Þetta er í anda stjórnarsáttmálans. Við viljum bæta sálfræðiþjónustu, ekki bara á háskólastigi heldur líka á framhaldsskólastigi,” sagði Lilja. Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði menntamálaráðherra einnig út í málefni stúdenta. Þau snérust ekki um gamaldags pólitík heldur líf og kjör ungra fjölskyldna í landinu. „Mig langar að heyra skoðun hæstvirts ráðherra á framfærslunni. Hvort henni þyki það forsvaranlegt að námsmenn lifi á 177 þúsund krónum áður en skerðingar hefjast. Í því sambandi er rétt að rifja upp að frítekjumark námsmanna hefur ekki hækkað síðan árið 2014," sagði Guðmundur Andri. Þetta væri langt undir tekjuviðmiðun velferðarráðuneytisins. Þá byggju aðeins um 9 prósent námsmanna við Háskóla Íslands á stúdentagörðum. „Þá er það að sjálfsögðu markmið þessarar ríkisstjórnar að bæta kjör íslenskra námsmanna og styrkja alla umgjörðina í kringum það. Það er auðvitað stórmerkilegt að löggjafinn hafi ekki náð að klára endurskoðun á heilum átta árum. En ég get fullyrt að þessi ríkisstjórn mun klára þessa endurskoðun. Við munum líka vera í mikilli samvinnu við námsmannahreyfinguna,” sagði Lilja Alfreðsdóttir.
Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Sjá meira