Vonir Noregs úti þrátt fyrir sigur │ Öruggt hjá Dönum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. janúar 2018 18:55 Sigur Norðmanna var ekki nógu stór í dag svo þeir eru á heimleið vísir/epa
Danir unnu öruggan ellefu marka sigur á Makedóníu í lokaleik sínum í milliriðli tvö á Evrópumótinu í handbolta sem fram fer í Króatíu. Fyrir leikinn voru Danir öruggir áfram í undanúrslit, og þar sem Slóvenar og Tékkar gerðu jafntefli fyrr í dag þá voru þeir einnig öruggir með fyrsta sæti riðilsins. Makedóníumenn áttu ekki möguleika á því að komast áfram. Það var jafnt með liðunum til að byrja með og fyrri hálfleikur allur í járnum. Staðan í leikhléi var 12-12. Danir komu hins vegar tvíefldir til leiks í seinni hálfleik og komust hægt og rólega fram úr Makedóníumönnum. Þegar leikurinn var flautaður af var munurinn orðinn 11 mörk, 20-31. Michael Damgaard var markahæstur í liði Dana með 11 mörk. Hjá Makedóníumönnum var Filip Kuzmanovski með 6 mörk. Svíþjóð og Noregur mættust í hörku leik í milliriðli eitt þar sem mun meira var undir. Bæði lið áttu möguleika á að komast áfram með sigri, en þurfa þó að treysta á að Frakkar vinni Króata seinna í kvöld. Leikurinn var stál í stál frá fyrstu sekúndu, en Norðmenn náðu aðeins að sigla fram úr um miðjan fyrri hálfleik, komust í 6-9 þegar 16 mínútur voru liðnar. Svíar komu til baka og var munurinn aðeins eitt mark í leikhléi, 11-12. Það var áfram allt jafnt í seinni hálfleik, en Norðmenn þó með tærnar aðeins framar grönnum sínum. Svíar gáfust þó aldrei upp og jöfnuðu leikinn þegar tæpar tíu mínútur voru eftir af leiknum. Christian O'Sullivan kom Norðmönnum aftur yfir stuttu síðar og þeir gáfu forystu sína ekki eftir aftur, lokatölur urðu 25-28 fyrir Norðmönnum. Nú eru Norðmenn, Svíar og Króatar með sex stig hvor, en Frakkar eru á toppnum með átta stig. Eins og áður segir mætast Frakkar og Króatar í kvöld þar sem úr ræðst hvaða lið fara áfram í undanúrslitin, sem og hverjir fylgja Dönum upp úr milliriðli tvö þegar Þjóðverjar og Spánverjar mætast. Norðmenn eru þó úr leik, því þeir þurftu að vinna með fimm mörkum til þess að eiga möguleika á að fara áfram. Svíar geta enn komist í undanúrslitin ef Frakkar vinna Króata.
EM 2018 í handbolta Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk komin heim Sport Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira