Skoðun

Getuleysi Öryggisráðsins

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Á síðustu átta dögum hafa rúmlega 550 manns, stór hluti þeirra börn, verið myrtir í Ghouta-hverfi í útjaðri Damaskus. Hersveitir hliðhollar ríkjandi valdi í Sýrlandi hafa með stuðningi Rússa jafnað spítala við jörðu í hverfinu með ítrekuðum loftárásum. Hersveitirnar varpa tunnum, yfirfullum af sprengiefni, sprengjubrotum og jafnvel eiturefnum, úr þyrlum yfir hverfinu þar sem fjögur hundruð þúsund óbreyttir borgarar lifa milli vonar og ótta. Á milli þeirra leynast 580 uppreisnarmenn. Sýrlensk yfirvöld eru reiðubúin að fremja fjöldamorð á eigin þegnum til að útrýma þeim.

Þetta hömlulausa ofbeldi er ekki aðeins að finna á sjálfum vígvellinum í Sýrlandi, heldur birtist það í annarri mynd víðsfjarri húsarústunum og barnsgrátinum í Ghouta-hverfi. Í fundarsal Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem fulltrúar þjóðanna koma saman undir því yfirskyni að koma sýrlensku þjóðinni til hjálpar. Öryggisráðið komst loks að samkomulagi um vopnahlé í Ghouta um helgina, eftir ítrekaðar tilraunir og ótal fundi. Síðan þá hafa rúmlega þrjátíu óbreyttir borgarar verið myrtir í loftárásum á Ghouta.

Óhætt er að segja að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi algjörlega, og ítrekað, brugðist sýrlensku þjóðinni.

Stríðandi fylkingar í Sýrlandi bera ábyrgð á mannfallinu, en ábyrgð ríkjanna fimm sem eiga fastasæti og hafa neitunarvald í Öryggisráðinu er ekki minni. Þessar þjóðir hafa leyft átökunum að halda áfram. Slíkt er vanhæfi þessara svokölluðu stórvelda að þeim hefur ítrekað mistekist að tryggja grundvallarmannréttindi hóps sem þurft hefur að þola einhverjar mestu hörmungar sem sést hafa.

Sýrlenska borgarastyrjöldin er mesti harmleikur okkar tíma, og það fyrir ýmsar sakir. Mannfallið og það gegndarlausa ofbeldi sem átt hefur sér stað þar ber nöturlegt vitni um þá villimennsku sem tegundin okkar er fær um að sýna. En um leið, verandi hin upplýsta og tengda kynslóð, neyðumst við í ljósi hörmunganna til að horfa inn á við og spyrja af hverju við látum þetta viðgangast. Engin kynslóð í sögunni hefur haft jafn gott aðgengi að upplýsingum og staðreyndum, og það er hægðarleikur að beita sér í þágu Sýrlendinga.

Sama hversu smá ríkin eru, þá hafa þau burði og umfram allt siðferðilega skyldu til að halda á lofti gildum sínum og berjast fyrir mannréttindum Sýrlendinga. Ekki verður unað lengur við getuleysi Sameinuðu þjóðanna, því þurfa almennir borgarar að sýna manngæsku í verki og koma bræðrum sínum og systrum í Sýrlandi til aðstoðar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×