Skoðun

Af KSÍ og Íslandsmótinu

Benedikt Bóas skrifar
Nú þegar aðeins nokkrir dagar eru í að Íslandsmótið í fótbolta hefjist er ekki úr vegi að rifja upp að mótið 2017 var flautað af þann 30. september. Það eru þó nokkrir mánuðir síðan.

Hvað hefur gerst síðan mótið 2017 var flautað af? Ekkert. Nákvæmlega ekkert. Og það er ekki eins og félögin og samtökin Íslenskur toppfótbolti hafi ekki reynt.

Þau svör sem þau fá eru svona. Þetta er ritað á síðasta stjórnarfundi KSÍ þar sem Íslenskur toppfótbolti bar upp bónina um að fá að taka yfir markaðssetninguna í efstu tveimur deildunum. „Samþykkt að skoða málið heilstætt og ræða við ÍTF á næsta samráðsfundi.“

Hér þarf að stappa niður fæti og segja einfaldlega: Elsku besta KSÍ. Þið hafið ekki mannafla til að sjá um þetta og framkvæma. Leyfið samtökunum að taka þetta ár. Þetta verður alltaf skrýtið ár hvort sem er vegna HM.

Áhorfendatölur eru skelfilegar á Íslandi. Sama hvað menn segja um höfðatölur. Það er auðvitað mesta bull sem ég hef nokkru sinni heyrt, eins og vinur minn Mikki refur segir. Ég meira að segja leiklas þennan hluta. Vonandi þú líka, kæri lesandi. En allavega. Áhorfendatölur voru fínar fyrir þremur árum en áhorfendum hefur fækkað um 400 manns að meðaltali. Slík þróun kallar á aðgerðir.

Þær aðgerðir þurfa að koma núna. Meira að segja núna er orðið of seint. KSÍ setti nefnd um málið í gang í vetur en hana dagaði uppi og ekkert var gert. Aðgerða er þörf og það eru aðilar tilbúnir að leggja mikið á sig til að fá fólk á völlinn. KSÍ er ekki tilbúið að gera það. En sambandið er heldur ekki tilbúið að sleppa tökunum á mótinu. Slíkt getur ekki verið gott fyrir íslenskan fótbolta.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×