Misvísandi málflutningur Þráins Kristinn H. Gunnarsson skrifar 5. mars 2018 16:16 Það er engum blöðum um það að fletta að margir hafa sterkar skoðanir á umskurði sveinbarna. Sá siður er framandi í íslensku samfélagi og fáum hér að skapi. Hins vegar hefur umskurður verið við lýði um þúsundir ára víða um heim og á sér sterkar rætur í hefðum, trú, menningu eða siðum í margvíslegum menningarheimum. Árlega eru um 1300 þúsund sveinbörn umskorin í Bandaríkjunum einum og um 500 þúsund í Íran svo tvö dæmi séu tilfærð. Talið er að nærri 40% drengja í heiminum séu umskorin. Málið er umdeilt víðar en hér á landi og oft er hart deilt. Í kjölfar þess að lagafrumvarp var lagt fram á Alþingi hófst áköf og á köflum tilfinningaþrungin umræða. Heilsufarsrök hljóta að vega þungt í mati á umskurði á hvorn veg sem þau rök falla. Af þeim ástæðum verður opinber umræða um málið mikið um þann þátt málsins. Stofnanir á borð við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út skýrslur um umskurð drengja. Stofnunin Sundhedstyrelsen í Danmörku sömuleiðis og auk þess stofnanir, háskólar og samtök lækna víð um heim og þar ber hæst samtök barnalækna í Bandaríkjunum. Engin framangreindra stofnana og samtaka leggst gegn umskurði. Gengið er út frá að aðgerðin sé framkvæmd af fagfólki við góðar aðstæður. Hins vegar er mismunandi hver og hve mikil gagnsemin er talin vera. Svo eru til ýmsar skýrslur og álit sem mæla gegn umskurði. Nefna má hér á landi nýleg álit frá læknum og hjúkrunarfræðingum sem leggjast gegn þessum verknaði. Í umræðu skiptir máli að draga fram staðreyndir, gera grein fyrir staðhæfingum og rökstuðningi fyrir þeim og skoðunum. Sérstaklega er mikilvægt að skila vel á þarna á milli. Heilbrigðisstarfsfólk hefur þekkingar sinnar vegna meiri áhrif en aðrir en að sama skapi verður það að gæta þess að halda aðgreindum faglegum rökum og gildishlöðnum skoðunum. Þráinn Rósmundsson, barnaskurðlæknir hefur blandað sér í umræðuna með grein á visir.is. Hann gerir grein fyrir sínum skoðunum svo sem eðlilegt er. Hins vegar Þráinn ýmist að vitna í eigið framlag án þess að gera grein fyrir því eða gefa frekar ónákvæma lýsingu á öðrum rökstuðningi sem hann færir fram. Í þessu máli eru mjög skiptar skoðanir meðal lækna og annarra fagstétta. Fyrir leikmenn er því enn mikilvægara að skýrt sé um hvað læknar deila og hvers vegna. Í því felst kostur almennrar umræðu. Nokkur atriði í grein Þráins Rósmundssonar þarf að gera athugasemd við og eftir atvikum leita eftir frekari rökstuðningi við.Stefna en ekki grein Þráinn getur um grein frá Bandaríska læknafélaginu, AAP, frá 2012 þar sem sett er fram það álit byggt á fyrirliggjand gögnum að heilsufarslegur ávinningur af umskurði sé meiri en áhætta af aðgerð og það réttlæti aðgengi foreldra að aðgerð á kostnað þriðja aðila. Þarna láðist Þráni að geta þess að greinin er skýrsla læknasamtakanna, studd af samtökum kvensjúkdóma- og fæðingarlækna í Bandaríkjunum og stefna þessar samtaka í málinu. Á þessu er verulegur munur.Stefnan óbreytt Í öðru lagi segir Þráinn í grein sinni að umræddri skýrslu hafi verið svarað ári síðar af 40 læknum í vestur Evrópu og öll rökin í fyrri skýrslunni hafi verið hrakin. Án vafa er það skoðun Þráins að öll rök hafi verið hrakin, enda er hann sjálfur einn þeirra sem standa að seinni skýrslunni. Það er hins vegar bara skoðun en ekki staðreynd. AAP hefur ekki breytt stefnu sinni né hin læknasamtökin sem að stefnunni standa eftir því sem best verður séð. Það veikir málflutning Þráins að vitna í sjálfan sig sínu máli til stuðnings án þess að láta lesandann vita. Alþjóðlegar stofnanir hafa heldur ekki breytt áður framkomnu mati sínu eftir því sem næst verður komist. Frá sjónarhóli leikmanns er málið þannig vaxið að læknar og að einhveru marki aðrir fræðimenn eru ósammála um heilsufarsþáttinn. Þá skipta rökin máli sem hvor aðili um sig ber fram og annar aðilinn getur ekki talað fyrir báða.Menningarhefðin hefur áhrif Þráinn og félagar hans halda fram í grein sinni að álit bandarísku læknanna endurspegli menningarlegu hefðina þar í landi og sé af þeim sökum jákvæðara í garð umskurðar en efni standa til. Á móti því er bent að evrópsku læknarnir eru allir úr annarri menningu hvað þetta varðar og forsprakki hópsins Morten Frisch er sagður í einni umfjöllum um málið hafa viðurkennt að mat Evrópumannanna dragi líka dám af eigin menningu. Þetta atriði sýnir kannski hvað best hvað ýmislegt annað en bara heilsufarsleg atriði geta haft mikil áhrif á skoðanir og mat, jafnvel vísindamanna og sveigt álit þeirra að því sem samrýmist hefðum, siðum og menningu þeirra, að ekki sé talað um trúarbrögð.Mismunandi lýsingarorð Þráinn Rósmundsson notar sterk lýsingarorð um framkvæmd og afleiðingar aðgerðarinnar. Lýsing í skýrslum stofnana og samtaka sem ekki mæla gegn umskurði og jafnvel telja aðgerðina að einhverju leyti til gagns er á allt annan veg. Almenningur á erfitt með að henda reiður á staðreyndum málsins þegar þeir sem eiga að teljast fagmenn gefa mjög misvísandi lýsingu sem virðist ráðast af því hvorum megin þeir standa í málinu. Yfirlýsingar um limlestingu og mikinn sársauka skipta auðvitað miklu máli í huga fólks og þess vegna er hætt við því að aðilar máls ýmist ýki eða dragi úr þeim þáttum til þess að vinna stuðning við skoðun sína. Það verður að segjast eins og er að aðgerð sem gerð er árlega á 15 – 20 milljónum sveinbarna og hefur verið gerð um þúsundir ára getur varla verið í flokki limlestinga og mjög sársaukafullra aðgerða enda bera skýrslur opinberra stofnana og alþjóðasamtaka það ekki með sér. Það er hins vegar ekki þar með sagt að fallist sé á þörf fyrir eða tilgang aðgerðar. Vísindagrein um dauðsföll Það sem Þráinn þarfi kannski helst að skýra betur er fullyrðingin „í vísindagrein frá Bandaríkjunum frá 2010 kemur fram að yfir 100 drengir deyja árlega eftir umskurði.“ Þarna er væntanlega vitnað til greinar Dan Bollinger sem birtist í tímaritinu Thymos: Journal of Boyhood Studies. Þráinn segir um greinina að þar komi fram að yfir 100 drengir deyi árlega. Bollinger segir hins vegar að talan sé mat hans á fjöldanum. Það er tvennt ólíkt, staðhæfing eða mat. Þessi grein er alls ekki óumdeild og Bollinger hefur sætt umtalsverðri gagnrýni, einmitt fyrir mat sitt á þeim gögnum sem hann byggði grein sína á. Gagnrýnendur Bollinger segja að hann skýri 25% hærri dánartíðni nýfæddra sveinbarna en meyja í Bandaríkjunum með því að sveinbörnin hafi dáið af völdum umskurðar. Það komi hins vegar ekki fram í gögnunum heldur sé hans ályktun. Birt hefur verið samantekt frá öðrum löndum þar sem umskurður er fátíður þar sem svipaður munur er á dánartíðni eftir kynjum og í Bandaríkjunum. Munurinn er nánast sá sami í Danmörku og hærri í Noregi. Ályktanir Bollinger standa því völtum fótum. Til eru þeir sem lesa úr þessum heilsufarsupplýsingum að 0 – 3 börn kunni að deyja árlega af völdum umskurðar í Bandaríkjunum.Hin hreina rödd Að öllu samanlögðu er grein Þráins misvísandi í nokkrum atriðum. Fyrir liggur að hann er þátttakandi í heitri umræðum um málið og hefur skipað sér í annan hópinn. Þráinn deilir við kollega sína í læknastétt og er alls ekki óvilhallur í umræðunni. Það gerir hann auðvitað ekki ómarktækan, öðru nær. Það á líka við um þá lækna sem eru Þráni ósammála, þeir eru heldur ekki ómarktækir, né heldur stofnanir og samtök sem láta sig heilsufarsmál varða víða um heim. Mín niðurstaða eftir nokkra yfirlegu og kynningu á málinu er að menning, siðir og jafnvel trú séu sterkasta aflið í skoðanamyndun og ennfremur að bæði fylgjendur umskurðar og andstæðingar beiti túlkun á heilsufarsupplýsingum sínum málstað til framdráttar. Af þeim sökum þarf að taka ýmsar fullyrðingar sem settar eru fram af varúð og varkárni. Þegar lagt til á Alþingi að gera heilu menningarheimana að glæpafólki sem sitja eigi 6 í fangelsi er full ástæða til að staldra við og gefa sér tíma til yfirvegaðrar gagnaöflunar og umræðu í framhaldinu. Það er of mörg vond dæmi til í mannkynssögunni um þá sem litu á sig sem handhafa sannleikans og þess umkomna að vísa hinum óhreinu úr samfélagi hinna hjartahreinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn H. Gunnarsson Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Sjá meira
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar