Lífið

Hispurslaus ástúð milli efstu manna í Melodifestivalen vakti athygli

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Benjamin Ingrosso og Felix Sandmann.
Benjamin Ingrosso og Felix Sandmann. Vísir/Getty
Svíar völdu framlag sitt til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á laugardaginn og bar söngvarinn Benjamin Ingrosso sigur úr býtum með lagið Dance You Off. Í öðru sæti var söngvarinn Felix Sandmann og vöktu innileg fagnaðarlæti söngvaranna á úrslitakvöldinu mikla athygli meðal sænskra áhorfenda.

Ingrosso og Sandmann hefur báðum verið hrósað fyrir að halda ekki aftur af sér og láta óhræddir í ljós væntumþykju. Sænska dagblaðið Aftonbladet vakti athygli á stöðuuppfærslu hins 24 ára gamla Svía August Kretschmer Jeansson Plym í tengslum við málið.

Í stöðuuppfærslunni fjallar Jeansson Plym um Ingrosso og Sandmann og hispurslaus vinahót þeirra á milli er þeir biðu eftir úrslitum. Mjótt var á mununum og greinilegt var að söngvararnir voru spenntir.

„Í stuttu máli, Benjamin sigrar. Þá tók ég eftir því að svolítið sérstakt gerðist,“ skrifar Jeansson Plym. „Strákarnir eru að faðmast, kannski á innilegasta máta sem ég hef séð í sænsku sjónvarpi.“

Þá lýsir Jeansson Plym því hvernig Ingrosso steypti sér í handahlaup í sigurvímu, missti jafnvægið og datt í jörðina. Í kjölfarið beygði Sandmann sig niður og kyssti Ingrosso rembingskoss, til að óska honum til hamingju með sigurinn.

„Strákar, haldið áfram að gera það sem þið eruð að gera. Haldið áfram að sýna tilfinningar ykkar, kennið ungum mönnum að það sé í lagi að vera berskjaldaður. Kennið ungum mönnum að það sé í lagi að samgleðjast vini,“ skrifar Jeansson Plym og lofar Ingrosso og Sandmann í hástert fyrir að sýna gott fordæmi.

Nokkuð hefur borið á tilfinningum karlmanna í umræðu hér á landi undanfarin misseri, nú síðast undir myllumerkinu #karlmennskan þar sem karlar eru hvattir til að brjótast undan hugmyndum um „eitraða karlmennsku.“

Þá var Ari Ólafsson, sem fer fyrir Íslands hönd í Eurovision, gagnrýndur fyrir að hafa grátið í beinni útsendingu á úrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins. Netverjar komu Ara þó margir til varnar og hrósuðu honum fyrir að leyfa tárunum að flæða.


Tengdar fréttir

Flaug út úr líkamanum og horfði á sjálfan sig syngja

Ari Ólafsson mun keppa fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í maí næstkomandi með lag sitt Our Choice. Ari segir sigurinn hafa komið sér gríðarlega á óvart og að tilfinningarnar hafi nær borið hann ofurliði í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.