Dæmdur fyrir að áreita flugfreyju þegar hann olli uppnámi í flugvél Kjartan Kjartansson skrifar 23. mars 2018 19:10 Alfreð Örn hefur einnig verið sakaður um milljarða króna fjársvik í Bandaríkjunum. Mynd/Saksóknari í San Bernadino
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Alfreð Örn Clausen í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag, meðal annars fyrir að hafa áreitt flugfreyju um borð í flugvél Icelandair kynferðislega. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða flugfreyjunni hálfa milljón króna í bætur. Alfreð Örn var ákærður fyrir kynferðislega áreitni, brot gegn lögum um loftferðir og brot gegn valdstjórninni. Þá lagði flugfreyjan fram einkaréttarkröfu gegn honum vegna áreitninnar. Í dómnum kemur fram að Alfreð Örn hafi látið öllum illum látum um borð í flugvél Icelandair sem var á leið frá Toronto í Kanada til Íslands haustið 2014. Hann hafi ítrekað farið gegn fyrirmælum flugstjóra og flugverja um góða hegðun og reglu. Þannig hafi Alfreð Örn meðal annars staðið tvisvar upp úr sæti sínu í flugtaki, angrað og áreitt aðra farþega og hunsað flugverja sem skipuðu honum að róa sig og sína stillingu.Stakk fingri upp undir pils í átt að rassiFlugfreyjan sem hann áreitti þurfi ítrekað að gera hlé á störfum sínum til að ræða við Alfreð Örn. Í nokkur þeirra skipta sló hann hana á rassinn og strauk rass hennar utanklæða. Þá setti hann stút á munninn og reyndi að kyssa flugfreyjuna og stakk fingri uppundir pils hennar í átt að rassi hennar. Greip hann einnig ítrekað í handlegg flugfreyjunnar og reyndi að toga hana inn í sætaröðina til sín þar til aðrir farþegar og flugverja komu henni til aðstoðar við að yfirbuga Alfreð Örn. Var hann á endanum handjárnaður og fjötraður við sæti sitt. Við þær aðfarir marðist flugfreyjan á hægri framhaldlegg, hægra læri og hægri kálfa. Eftir að Alfreð Örn var fjötraður var hann æstur og braust um og æpti hótandi og tvíræðum ókvæðisorðum að þeim flugverjum sem, til skiptis, urðu að gera hlé á störfum sínum til að sitja hjá honum, og að farþega sem í tvígang sat hjá honum. Þá var Alfreð Örn ákærður fyrir að sparka í fótlegg lögrglumanns á lögreglustöðinni að Hverfisgötu í Reykjavík í apríl í fyrra. Alfreð Örn játaði sök og leit dómurinn til þess og að þrjú ár væru liðin frá brotunum um borð í flugvélinni við ákvörðun refsingar. Hann var dæmdur í fjöggura mánaða skilorðsbundið fangelsi. Sakaferill Alfreðs Arnar var hins vegar ekki talinn hafa þýðingu fyrir úrlausn málsins. Hann var meðal annars eftirlýstur af lögreglu í Kaliforníu í Bandaríkjunum árið 2015 vegna umfangsmikils fjársvikamáls. Interpol gaf út alþjóðlega handtökuskipun á hendur honum. Hann var sakaður um að hafa svikið milljarða króna út úr viðskiptum lögfræðistofu.
Tengdar fréttir Hafa ekki reynt að fá Alfreð framseldan Snúi hann aftur til Bandaríkjanna verður Alfreð Clausen handtekinn. 25. mars 2017 09:59 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Sagði fósturmissinn með vilja gerðan og hótaði að taka frá henni börnin Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Sjá meira
Hafa ekki reynt að fá Alfreð framseldan Snúi hann aftur til Bandaríkjanna verður Alfreð Clausen handtekinn. 25. mars 2017 09:59