Lotta sýnir loftfimleika á Tenór á fleygiferð Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 8. apríl 2018 21:45
Hesturinn Tenór sem er 22 vetra og Þórhildur Lotta Kjartansdóttir, alltaf kölluð Lotta, sem er níu ára úr Þykkvabænum hafa vakið mikla athygli því Lotta geri fimleikaæfingar á baki á meðan Tenór hleypur með hana. Lotta ætlar sér að verða dýralæknir og hestakona.Lotta, pabbi hennar, bróðir og vinkona fjölskyldunnar mættu með hestakerruna við Rangárhöllina þar sem Lotta og Tenór bíða eftir að fá að sýna listir sínar. Fyrst þarf að klæða Tenór upp, hann fær sérstaka andlitsgrímu og það þarf að spenna gjörðina vel og hafa allt klárt áður en sýningin hefst í höllinni. Fjölskyldan og Tenór búa á bænum Búð í Þykkvabæ.Tenór og Lotta ná mjög vel saman enda treysta þau hvort öðru 100% þegar Lotta gerir loftfimleikana á honum.Vísir/Magnús Hlynur„Ég er að gera svona loftfimleika“, segir Lotta og bætir við að Tenór sé skemmtilegur hestur, enda vinur hennar, sem hlustar á hana og er mjög blíður. Tenór þreytist ekki á að hlaupa með Lottu fram og til baka í reiðhöllinni enda ná þau einstaklega vel saman og treysta hvort öðru. Lottu finnst ekkert mál að halda jafnvægi á Tenór þó hann hlaupi hratt með hana. Hún segir hesta ótrúlega skemmtilega enda er hún búin að ákveða að verða hestakona og dýralæknir þegar hún verður fullorðin. Hún og Tenór hafa verið pöntuð á nokkrar reiðsýningar á næstunni þar sem þau ætla að halda áfram að sýna listir sínar.
Dýr Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira