Komið að ögurstundu hjá Valskonum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2018 10:30 Valur, Haukar, körfubolti, karfa, 2018, úrslit, Dominosdeildin, Domino's deild kvenna, úrslitakeppni
Sigur er það eina sem kemur til greina hjá kvennaliðum Vals í körfubolta og handbolta í kvöld, ellegar verða andstæðingar þeirra krýndir Íslandsmeistarar. Valur er 2-1 undir í einvíginu gegn Haukum í úrslitum Domino’s-deildar kvenna í körfubolta. Valskonur eru á stærsta sviðinu í fyrsta sinn en sagan er með Haukakonum í liði. Frá því að úrslitakeppnin var tekin upp í kvennaflokki 1993 hafa Haukar sex sinnum komist í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn og þrisvar sinnum náð í þann stóra. Helena Sverrisdóttir hefur stjórnað ferðinni í úrslitaeinvíginu en hún hefur verið með þrefalda tvennu í öllum þremur leikjunum. Aalyah Whiteside hefur dregið Valsvagninn í úrslitaeinvíginu en hún er með 27 stig að meðaltali í leik. Haukar voru með frábæra 48% þriggja stiga nýtingu í síðasta leik og unnu frákastabaráttuna 43-26. Engu breytti þótt liðið fengi aðeins sex stig af bekknum. Leikur Vals og Hauka hefst klukkan 18.00 á Hlíðarenda í kvöld. Fram í lykilstöðuSteinunn Björnsdóttir sækir að marki ValsVísir/VilhelmFram er einum sigri frá því að verða Íslandsmeistari í handbolta kvenna annað árið í röð og í 22. sinn alls. Valur vann fyrsta leikinn í úrslitaeinvígi liðanna en Fram hefur unnið síðustu tvo og er í lykilstöðu. Fram tryggði sér sigur í öðrum leiknum með því að vinna síðustu níu mínúturnar 7-1. Í þriðja leiknum snerist dæmið við. Þá byrjuðu Safamýrarstúlkur frábærlega og lögðu þar grunninn að sigrinum. Valskonur söknuðu framlags frá Diönu Satkauskaite í síðasta leik en hún hefur glímt við meiðsli, líkt og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir sem hefur ekki getað beitt sér að fullu í síðustu tveimur leikjum og munar um minna. Ragnheiður Júlíusdóttir hefur verið í aðalhlutverki í sóknarleik Fram en skyttan öfluga er með 22 mörk í úrslitaeinvíginu, eða 7,3 mörk að meðaltali í leik. Hún er markahæst í úrslitunum. Leikur Fram og Vals hefst klukkan 20.00 í Safamýrinni í kvöld.
Birtist í Fréttablaðinu Dominos-deild kvenna Olís-deild kvenna Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira