Vorspá Siggu Kling – Hrúturinn: Ekki fresta hlutunum 4. maí 2018 09:00
Elsku Hrúturinn minn, þú ert svo fyndin, margslungin og yndisleg persóna. Innst inni finnst þér gaman að vera innan um fína og fræga fólkið þó alls ekki hægt sé að segja að rigni upp í nefið á þér og snobb er ekki orð sem þú notar. Þú nýtur lífsins um leið og þú veist að þetta snýst um að borða, elska og biðja en í þessari setningu er mjög mikilvægt þú biðjir um það sem þú viljir, það eina sem fer þér alls ekki er að væla, ég hef reyndar aldrei hitt vælandi Hrút en pottþétt eru þeir til þarna úti. Þú hefur ekki hugmynd um hversu mikill sigurvegari og fyrirmynd þú ert og það væri mjög gaman þú færir núna fyrir framan spegil og lýstir þér í fáum orðum, ég hef enga trú á að þú getir það, en sannaðu fyrir mér að ég hafi rangt fyrir mér! Þú ert með afbrigðum greind persóna og með eindæmum verklagin, hvort sem þú ert kona eða karl þá reddarðu þér alltaf; er sprungið dekk, þarf að mála? Og þegar þú ræðst í hlutina þá stendur enginn jafnfætis þér. En þú átt það til að röfla í hausinn á þér og mikla fyrir þér það sem þú ert að gera og þá kemur orðið frestun; Að fresta því að fara í blóðprufuna, fresta að fara í prófin, fresta að ganga frá hinu eða þessu. Einu leiðindin sem eru að mæta þér á næstunni eru tengd þessu svo gefðu þér engan frest og gerðu bara hlutina, ekki bíða eftir neinu eða neinum heldur gerðu það sem þú þarft sjálfur. Framkvæmdu meira en þú þarft því þú vinnur best undir stressi og álagi svo settu pressu á sjálfan þig og settu þér tímasetningar, jafnvel á minnstu hlutum, því margt smátt gerir eitt stórt. Þú býrð yfir segulmagnaðri orku sem færir þér hvert tækifærið eftir öðru á silfurbakka og það er svo sérstakt að þú ert nýbúinn að eiga afmæli sem þýðir að þú ert að byrja á nýjum kafla í lífi þínu sem svo sannarlega mun magna upp allt sem þú hugsar. Svo skoðaðu mjög vel hvað þú ert að hugsa, þú ert það sem þú hugsar sagði maðurinn, svo um leið og þú breytir hugsunum þínum sérðu tækifærin sem eru að berast þér. Plánetan Mars er ríkjandi yfir þér sem gerir þig að duglegri og útsjónarsamri manneskju. Skoðaðu því líka vel hvaða laun þú átt skilið og hvaða tækifæri þú átt skilið, og líka hvaða ást. Það er svo mögnuð orka yfir þér núna næstu daga og vikur, taktu áhættu og þér verða gefnir vængir til að fljúga, og athugaðu það til dæmis að býflugan á alls ekki að geta flogið miðað við þyngd sína í hlutfalli við vængi, en hún veit það ekki og flýgur bara! Ég veit það er pottþétt að býflugurnar eru í Hrútsmerkinu því þær eru að fæðast núna, svo setningin þín er: Vertu býfluga og fljúgðuKnús og kossar, þín Sigga KlingFrægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Tíska og hönnun „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Lífið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjá meira