Vorspá Siggu Kling – Fiskurinn: Næstu mánuðir munu gefa þér mikinn skilning 4. maí 2018 09:00
Elsku Fiskurinn minn það eru ótal hlutir sem hafa verið að berjast í huga þínum og ótal er í raun og veru allt of mikið, einfaldaðu þetta ótal niður í nokkra hluti sem skipta máli og þá geturðu svo sannarlega séð hvað er mikilvægast. Þú hugsar til dæmis svo oft: Ég er ekki svo hamingjusamur hérna, en verð hamingjusamur þarna, svo þú þarft að gera þer grein fyrir, blessa og þakka fyrir það sem er að gerast akkúrat núna því erfið tilfinningin festir þig jafnmikið og auðveld tilfinning. Það er svo ótalmargt búið að breytast síðustu tólf mánuði sem þú hefur ekki tekið nógu vel eftir svo fagnaðu þeim stað sem þú ert á og þá ferðu ferskur inn í næsta mánuð og hver elskar ekki ferskan fisk? Þú átt eftir að breyta aðferðarfræði þinni á næstunni, nota nýja tækni til þess að koma markmiðum þínum fram og fá þá orku til að sinna því og fagna hversu mikla athyglisgleði þú átt og þarft. Þegar þú ert í sviðsljósinu viltu alls ekki vera þar og þegar enginn sýnir þér athygli viltu alls ekki vera þar í skugganum heldur. Ástæðan fyrir því að merkið þitt heitir Fiskarnir þýðir að það eru tveir Fiskar sem standa að þessu merki, annar vill eitt og hinn eitthvað allt annað. Þar af leiðandi þarfnast þú mjög fjölbreytts lífs. Næstu mánuðir munu gefa þér mikinn skilning á hver þú ert í raun og veru og þú munt sjá svo jákvæðar hliðar á lífinu þar sem þér fannst allt vera svart áður. Sjáðu það fyrir þér að annar Fiskurinn sé svartur og hinn hvítur og nærðu hvíta Fiskinn meira og þá verður engin hindrun. Það er svo margt frábært í þér og þar liggur akkúrat vandamálið, það er svo erfitt að velja þegar maður getur svo margt. Skoðaðu það núna elskan mín að velja það sem gefur þér veraldleg gæði því að sú orka er að streyma inn í líf þitt. Að sjálfsögðu eru veraldleg gæði tengd hinu andlega svo láttu allt flakka því ef þú heldur einhverju inni myndar það aðeins þreytu, veikindi og andleysi. Skilaboðin eru: Ég er að fara inn í sköpunargleði og þar sem er vilji þar er vegur Knús og kossar, þín Sigga KlingFrægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla, Nanna Lovísa dýranuddari, Höskuldur Kári Schram fréttamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Lífið Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Lífið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Lífið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Fleiri fréttir Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Sjá meira