Abramovich orðinn ísraelskur ríkisborgari Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. maí 2018 09:00 Roman Abramovich, eigandi Chelsea. Getty
Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er nú orðinn ísraelskur ríkisborgari ef marka má fréttir þar í landi. Rússinn Abramovich er eigandi Chelsea en missti af bikarúrslitaleik liðsins gegn Arsenal á dögunum þar sem að landvistarleyfi hans í Bretlandi var útrunnið. Það hefur andað köldu í samskiptum Bretlands og Rússlands undanfarna mánuði eftir að eitrað var fyrir rússneskum gagnnjósnara og dóttur hans í Englandi. Abramovich sótti um endurnýjun á landvistarleyfi sínu sem rann út í apríl en það gekk erfiðlega að fá það í gegn. Að sögn fjölmiðla í Bretlandi vildu yfirvöld þar í landi fá skýringar á því hvernig Abramovich hafði tekist að fá auðæfi sín. Hvorki bresk yfirvöld né Abramovich sjálfur hafa tjáð sig um málið en fullyrt er að Abramovich hafi flogið til Tel Aviv í gær og fengið þar nýjan ríkisborgararétt sinn staðfestan. Innanríkisráðuneyti Ísraels hefur staðfest þetta við fjölmiðla þar í landi. Þetta þýðir að Abramovich er heimilt að ferðast til Bretlands þar í allt að sex mánuði. Honum verður þó ekki leyfilegt að starfa þar í landi án þess að fá atvinnuleyfi. Roman Abramovich er í hópi ríkustu manna Rússlands en hann eignaðist Chelsea árið 2003.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Haaland sló met Agüero Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Sjá meira