Ökumaður leigubílsins var hundeltur af gangandi vegfarendum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. júní 2018 09:56 Ökumaðurinn óttaðist um eigið líf. Vísir
Ökumaður leigubílsins sem ekið var á gangandi vegfarendur í miðborg Moskvu í gær segist hafa óttast um að aðrir vegfarendur myndu ganga frá sér eftir slysið. Hann segir að rekja megi áreksturinn til þess að hann hafi óvart ýtt á bensíngjöf bílsins í stað bremsunnar. BBC greinir frá.Átta slösuðust í árekstrinum en meðal þeirra voru mexíkóskir knattspyrnuaðdáendur sem staddir eru í borginni til að fylgjast með heimsmeistaramótinu sem þar fer fram. Í myndskeiði úr öryggismyndavélum á svæðinu sést að ökumaðurinn tók skarpa beygju út úr bílaröð og ók bílnum upp á gangstétt. Á öðru myndskeiði má einnig sjá ökumanninn hlaupa af vettvangi með aðra vegfarendur á eftir sér. Ökumaðurinn er 28 ára gamall kirgiskur ríkisborgari. Segist hann hafa verið að störfum í tuttugu tíma áður en slysið átti sér stað og að hann hafi aðeins náð tveggja tíma svefni áður en vaktin hófst. „Ég ætlaði að bremsa, því ég vildi hleypa vegfaranda. Það slokknaði á mér í smástund og ég ýtti á bensíngjöfina. Svo sá ég fólkið,“ sagði ökumaðurinn sem var handtekinn á vettvangi. Rannsókn málsins stendur yfir. Moscow police say eight hurt after taxi drives into crowd #Russia #Moscow #WorldCupRussia2018 pic.twitter.com/hTuMowuYST— Darren Oatway (@DarrenOatway) June 16, 2018
Tengdar fréttir Leigubíl ekið á gangandi vegfarendur í Moskvu Á meðal hinna slösuðu eru mexíkóskir knattspyrnuaðdáendur sem staddir eru í borginni til að fylgjast með heimsmeistaramótinu sem fer fram í landinu um þessar mundir. 16. júní 2018 20:54 Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Sjá meira
Leigubíl ekið á gangandi vegfarendur í Moskvu Á meðal hinna slösuðu eru mexíkóskir knattspyrnuaðdáendur sem staddir eru í borginni til að fylgjast með heimsmeistaramótinu sem fer fram í landinu um þessar mundir. 16. júní 2018 20:54