Íslensk Ameríska tapaði 301 milljón 27. júní 2018 06:00 Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi ÍSAM.
Heildsölurisinn Íslensk Ameríska (ÍSAM) tapaði 301 milljón króna á síðasta ári samanborið við 262 milljóna króna hagnað árið 2016. Rekstrartekjur félagsins námu 12.014 milljónum króna í fyrra og drógust saman um 400 milljónir frá fyrra ári og þá voru rekstrargjöldin 11.990 milljónir árið 2017 og jukust um 290 milljónir á milli ára, að því er fram kemur í samstæðureikningi ÍSAM fyrir síðasta ár. Íslensk Ameríska, sem flytur meðal annars inn vörur frá Procter & Gamble, er ein veltumesta heildverslun landsins en innan samstæðunnar eru jafnframt framleiðslufyrirtækin Myllan, ORA, Frón og Kexsmiðjan. Fjárfestingarfélagið Kristinn, sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, er eini eigandi heildsölunnar.Sjá einnig: Guðbjörg Matthíasdóttir kaupir Íslensk Ameríska Samkvæmt efnahagsreikningi ÍSAM voru eignir samstæðunnar 8,3 milljarðar króna í lok síðasta árs borið saman við 7,4 milljarða í lok árs 2016. Eigið fé var jákvætt um 1,9 milljarða í lok árs 2017 en var jákvætt um 2,2 milljarða í árslok 2016. Eiginfjárhlutfallið er því 22,3 prósent. Í skýrslu stjórnar kemur fram að ÍSAM hafi í maí á þessu ári endurfjármagnað allar vaxtaberandi skuldir sínar. Samhliða hafi hlutafé félagsins verið aukið um 500 milljónir króna og víkjandi lán upp á 300 milljónir tekið. Bergþóra Þorkelsdóttir lét af störfum sem forstjóri ÍSAM í lok marsmánaðar en hún tók við starfinu í lok árs 2015. Eftirmaður hennar hefur ekki verið ráðinn.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Guðbjörg Matthíasdóttir kaupir Íslensk Ameríska Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá árinu 1964. Kaupverðið er trúnaðarmál. 23. maí 2014 15:50 Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira
Guðbjörg Matthíasdóttir kaupir Íslensk Ameríska Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá árinu 1964. Kaupverðið er trúnaðarmál. 23. maí 2014 15:50